21.02.1949
Efri deild: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í C-deild Alþingistíðinda. (3963)

98. mál, atvinna við siglingar

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :

Herra forseti. „Blóðnætur eru bráðastar“, stendur þar. Ég sá, að þetta mál var hér til 1. umr., og af því að ég ætlaði að vera við umr. í Nd., gerði ég ekki ráð fyrir að taka til máls hér í d., enda gerði ég ráð fyrir, að það yrði þolað, að málinu væri vísað til n., áður en það yrði tekið til reglulegrar umr.

Að öðru leyti vil ég segja þetta í sambandi við fyrirspurnir hv. þm. Barð.: Ég vil taka það fram, að málið er ekki komið fyrir þingið frá sjútvmrh. né heldur í samráði við hann. Ég frétti fyrst af því í þinginu, og það var ekki rætt við mig um það af þn. Nd. Hins vegar hefur hringt til mín maður, sem taldi mig þekkja sig vel frá því í Vestmannaeyjum, og er sennilegt, að svo sé, þó að ég hafi ekki getað komið honum fyrir mig, og honum var mjög annt um þetta, og skýrði hann mér frá sérstökum atriðum í því, og það er það eina, sem ég hef heyrt um . það mál. Till. sú, sem hv. þm. Barð. vísaði til, er sem sagt komin fram í þ. án þess, að ég eigi þar hlut að máli.

Ég tel það óþarfa fyrir okkur, mig og hv. þm. Barð., að vera við þessa 1. umr. málsins að rifja upp gamlar deilur okkar, þar sem ég barðist fyrir auknum réttindum vélstjóra, en hann á móti. Annar segir, að hér sé um till. að ræða, sem rýri öryggið, en hinn segir, að hér sé um skynsamlega framkvæmd á málinu að ræða. En ég vil taka með allri varúð á þessu, þangað til sannað er, að hv. þm. Barð. hafi rétt fyrir sér. Og hvað því viðvíkur, sem hv. þm. nú fullyrðir, að vélabilunum hafi fjölgað síðan þetta frv. var samþ., þá er mér ekki kunnugt um það. En þó að vélabilunum hafi fjölgað, þá leyfi ég mér að efast um, að það standi í sambandi við lagabreyt., heldur stafi það af því, að nú er um fleiri skip að gera, og eftir því sem skipunum fjölgar, hlýtur náttúrlega að verða meira um vélabilanir.

Ég tel rétt, eftir að ég hef upplýst þetta fyrir hv. þm., að málinu verði vísað til hv. sjútvn. Þar er svo hægt að gera út um málið og er ég reiðubúinn til þess að eiga þá viðræður við hv. þm. Barð. um þetta mál. Ég hef myndað mér ákveðnar skoðanir á málinu á þessari stundu, en vil aðeins endurtaka, að ég er reiðubúinn til að ræða við n. um það og mun þá taka tillit til öryggis- og sanngirniskrafna.