21.02.1949
Efri deild: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í C-deild Alþingistíðinda. (3964)

98. mál, atvinna við siglingar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ef hæstv. fjmrh. hefur skilið orð mín svo, að ég væri hér að reyna að hefta, að málið færi í n., þá er það misskilningur. Ég vildi fá skýringu á þessu og læt mér nægja þær upplýsingar, sem ég hef fengið, og mun ekki í dag fara að ræða þær mismunandi skoðanir, sem við höfum á málinu. Hins vegar vil ég vænta þess, að hæstv. forseti reki ekki svo mjög eftir málinu hjá nefndinni, að ekki sé tími eða tækifæri til þess að ræða við hæstv. ráðh. (Forseti: Ég mun fara hóflega í það).