03.05.1949
Efri deild: 95. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í C-deild Alþingistíðinda. (3968)
98. mál, atvinna við siglingar
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Það er afskaplega einkennilegt, hve fáir af hv. þdm. eru hér viðstaddir til þess að hlusta á röksemdafærslu í þessu máli, en þessu máli er þannig varið, að menn verða að setja sig alveg sérstaklega vel inn í það, til þess að komast að kjarna málsins.
Ég geri ráð fyrir, að þegar menn almennt lesa yfir frv., finnist mönnum lítill munur vera á þeim breyt., sem það felur í sér, finnist það vera nokkurn veginn sama, hvort stendur 15–25 eða 25–50 hestöfl, eða hvort heldur stendur 25–50 ha. eða 50–75 ha., eða fyrir 600 komi 900. En sannleikurinn er sá, að það er reginmunur á, hvort þetta verður samþ. eða ekki, og það er svo mikill reginmunur á þessu, að ég veit ekki, hvort hv. þm. gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð, sem þeir eru að taka á sig með því að samþ. það. Og ég get ekki skilið það kapp hjá meiri hl. að geta ekki sameinazt um það og fresta ekki afgreiðslu þess, þar til endurskoðun hefur farið fram, en samkvæmt l. átti hún að fara fram um þetta leyti. En í þess stað er þetta tímabil notað til þess að veita á annað hundrað manns rétt, sem þeir annars hafa ekki samkv. núgildandi l., og rétt, sem þeir ekki fengju, ef l. væru endurskoðuð af kunnáttumönnum í faginu. Það er ekkert annað en ótti við endurskoðun, framkvæmda af fagmönnum, sem veldur því, að þessu er hraðað þannig í gegn. Það er ekkert annað en sá ótti, sem þessu veldur, hræðsla við, að þessir menn fái ekki réttindin, sem þeir eiga ekki að fá.
N. taldi sjálfsagt að senda frv. til umsagnar þeirra manna, sem mest berjast fyrir því, að þetta verði samþ., og þeirra, sem því eru mótfallnir, og sömuleiðis til hlutlausra aðila, eins og skipaskoðunarstjóra ríkisins, en hann hefur engra hagsmuna að gæta í þessu máli. Í þessu bréfi bar n. fram ákveðnar spurningar, sem hún óskaði, að yrði svarað af þessum aðilum. Fyrsta spurningin var svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Teljið þér, að frv. þetta, ef að lögum verður, veiki eða styrki öryggi skipaflotans yfirleitt?“ Þetta er raunverulega sú spurning, sem hver þm. ætti að hafa í huga og hver og einn að gera upp við sig að athuga, áður en málið er afgr. Nú hefur hv. frsm. meiri hl. og meiri hl. raunar allur talið, að þetta veiki ekki öryggið. En þá skulum við athuga, hvernig svörin hafa fallið við þessari fyrstu spurningu n. Fjórir aðilar, skipaskoðunarstjóri ríkisins, Vélstjórafélag Íslands, Skólafélag vélstjóraskólans og skólastjóri vélstjóraskólans, hafa svarað þessu á þá leið, að þeir álitu allir, að frv., ef það yrði samþ., mundi veikja öryggi skipanna og skipverja. Einn aðili er auk þess alveg hlutlaus og álitur, að það mundi hvorki gera að auka öryggið né veikja, en Mótorvélstjórafélag Íslands er eini aðilinn, sem telur, að það muni auka öryggið. En hverjir eru það þá, sem sækja þetta mál fastast? Það eru þeir menn, sem halda, að það yki öryggi skipaflotans, ef þetta verður samþ., það eru þeir menn, sem skv. frv. mundu fá stórkostleg réttindi fyrir ekkert nám, sem áður tók allt að 7 árum, og eiga nú að fá réttindi til þess að gæta véla allt að 900 hestafla. Þetta er eini aðilinn, sem mælir eindregið með frv. og álítur, að það styrki öryggi skipaflotans, ef það verður samþ. Allir aðrir aðilar álíta, að það mundi veikja öryggið, nema Fiskifélagið, sem álítur, að það mundi hvorki veikja né styrkja. Nú skal ég viðurkenna, að skipaskoðunarstjóri ríkisins er eini aðilinn, sem er alveg hlutlaus, en þar fyrir þykir mér það afar einkennilegt, að hv. samnm. mínir í sjútvn. skuli ekki geta fallizt á. að svona ætti ekki að afgreiða mál, jafnprýðilegir menn og aðgætnir og þeir eru. Ég skal vel viðurkenna, að það má deila um það, hvort skólastjóri vélstjóraskólans sé hlutlaus aðili, því að það er hægt að hugsa sér þann möguleika frá sálfræðilegu sjónarmiði, að hann muni draga taum skólans og nemenda hans, og einnig má segja það sama um Skólafélag vélstjóraskólans, en það má segja það sama um þá menn líka, sem hafa fengið menntun sína frá mótornámskeiði Fiskifélagsins, að þeir séu ekki hlutlausir. Annars er þetta kapp milli vélfræðinámskeiðs Fiskifélagsins og vélstjóraskólans mjög óheppilegt. Í staðinn fyrir að sameina kraftana og fá sem mest úr þeim, þá keppa þeir um að útunga sem flestum og reyna að ná í sem flesta nemendur til sín; hvor í sínu lagi. Af þekkingu minni á þessum málum, sem ég hef bæði fengið með námi mínu og starfi og einnig af umsjón með þessum málum erlendis, er mér það vel ljóst, hvernig ég á að vera í þessu máli, og þess vegna skil ég ekki, hvernig þm. geti afgr. þetta gegn áliti skipaskoðunarstjóra, sem álítur, að þetta mundi verða til þess að veikja öryggi skipa og skipverja. Og sízt af öllu skil ég í þeim mönnum, sem telja sig vera fulltrúa sjómannastéttarinnar, að þeir skuli samþ. þetta frv.
Ég vil nú beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann fresti umr. um þetta mál, því að hæstv. ríkisstj. hefur boðað mig á fund sinn kl. 4.30, og ég þarf að kalla fjvn. saman á fund núna strax. Vænti ég þess, að umr. um þetta mál verði frestað. [Frh.]