13.05.1949
Neðri deild: 108. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í C-deild Alþingistíðinda. (3991)
98. mál, atvinna við siglingar
Finnur Jónsson:
Frsm., hv. þm. Siglf., er ekki viðstaddur hér í d., en óskaði eftir, að ég hreyfði örfáum orðum um þetta frv. — Eins og hv. þdm. hljóta að taka eftir, hefur Ed. algerlega breytt þessu lagafrv., þannig að segja má, að sama og ekkert standi eftir af því eins og það var, þegar það fór úr þessari deild. Sjútvn. hefur tekið málið til meðferðar á ný og ákveðið að leggja fram brtt. á þskj. 725 og færa frv. á þann hátt í það horf, sem það var í, þegar það fór héðan. Mál þetta hefur verið rætt allmikið. Sjútvn. Nd. hafði um það mikil samráð, sérstaklega við ráðunaut Fiskifélagsins, og var frv. eins og það fór héðan úr d. afgr. með þeim breyt., sem hann lagði til, að gerðar yrðu á því.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri að sinni, en vil lýsa þeirri eindregnu ósk sjútvn., að frv. verði fært í það horf, sem það var í, þegar það fór héðan úr deildinni.