16.05.1949
Efri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í C-deild Alþingistíðinda. (4000)

98. mál, atvinna við siglingar

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessa umr., en vil þó aðeins drepa á nokkur atriði. — Eins og kunnugt er, hefur ekki orðið samkomulag um afgreiðslu þessa máls í sjútvn. Það hefur komið fram rökst. dagskrá, og verði hún samþ., þá ætti að geta náðst samkomulag um þetta mál á þessu sumri. Verði þessi leið valin, er gert ráð fyrir, að nefnd dómbærra manna í þessu máli fái til athugunar, hverja hún telur færa til meðferðar véla þeirra, sem um er að ræða, og þeir, sem að dómi n. hafa næga þekkingu og æfingu, fá síðan réttindi. Þessa lausn tel ég, að allir ættu að geta unað vel við. Hitt virðist mér varhugavert, að veita kannske fjölda manns réttindi, sem kunnáttumenn telja ekki færan til að gegna, og á ég erfitt með að skilja, að samgmrh. óski eftir þeirri lausn, að vel athuguðu máli. En þar sem ekki er víst, að umrædd dagskrártill. verði samþ., þykir mér rétt að bera upp þær brtt., sem ég hef áður lagt til, og auk þess eina till., sem verði viðbót við 17. gr., og er sú breyt. um, að hestaflatala véla verði samræmd, þannig að ekki verði miðað við tvenns konar hestöfl, þó að um sé að ræða bæði mótorvélar og eimvélar. Ég sé ekki ástæðu til að ræða það mál frekar, en vænti, að ráðh. sjái nauðsynina á þessari samræmingu.

Þá vil ég koma dálítið að því, sem iðnmrh. sagði í sinni ræðu. Hann sagði, að alltaf væri verið að biðja um undanþágur. Þetta veit ég, að er alveg rétt, enda höfum við aldrei haft á móti því, að veittar væru undanþágur fyrir einstaka menn, sem lengi hafa starfað og reynzt vel í starfi sínu, en teljum hins vegar ekki rétt að veita þessum mönnum full réttindi að órannsökuðu máli. Ef fara á inn á þá braut að veita öllum, sem eitthvað hafa við þetta starfað, full réttindi, hvað á þá eiginlega að gera við skólanemana? Er ætlunin, að þeir gangi bara atvinnulausir í landi og fái aldrei sinn siglingatíma? Það er ekki annað hægt að sjá á till. ráðh. — Þá var ráðh. að tala um, að í dag væru öll skip á ferðinni með undanþágumenn. Þetta getur vel verið, en í stað þessara manna eiga að koma skólamennirnir, og ef þeir yrðu hins vegar útilokaðir, væri það sama og að stöðva algerlega þróun skólans og þá stéttarinnar um leið sem fagstéttar. — Ráðh. var að tala um, að 1. og 3. vélstjóri á Vatnajökli væru undanþágumenn. Ég skal ekki rengja hann um það, og það getur meira að segja vel verið, að það séu mjög færir menn, en ég tel undanþágu fyrir nokkra menn, sem hana eiga skilið, ekki réttlæta að 2 hundruð menn fái full réttindi.

Í sambandi við ummæli ráðh. um þekkingu vélstjóranema á kælikerfi skipa og að sú grein væri ekki kennd í skólanum, en hins vegar lærðu þeir, sem væru á mótornámskeiðunum, þau fræði, þá vil ég geta þess, að Þorsteinn Loftsson, sem kennt hefur á þessum námskeiðum, hefur hvergi numið nema á Vélstjóraskóla Íslands, enda er það alger misskilningur, að mótornámskeiðin kenni meira í meðferð kælitækja en skólinn. Það má líka benda á, að 1. vélstjórarnir hjá Eimskip og Ríkisskip eru frá vélskólanum og hafa næga kunnáttu í meðferð kælitækja, auk þess sem ég er kunnugur því af eigin reynslu, þar sem ég er nemandi frá skólanum 1916 og tók þá litlu síðar við skipi með kælitæki og fór allt vel. Það er því hrein blekking, að Fiskifélagsnámskeiðin kenni meira í meðferð kælitækja. Í sambandi við þetta mál vil ég leyfa mér að lesa upp bréf frá tveimur mönnum, sem eru þessum málum vel kunnugir. — [Bréfið vantar í handrit þingskrifara.]

Ég verð að segja, að ég er dálítið undrandi yfir bréfi því, sem hæstv. ráðh. las upp, þar sem stendur, að einhverjir hafi reynslu af því, að þeir, sem lært hafa í Vélskóla Íslands, hafi ekki kunnáttu í meðferð eða gæzlu kælivéla. Hann sagði líka, að eimvélstjórar kæmu naumast til greina á stóru skipin. Það er greinilegt, að í slíkum málflutningi eru veilur og jafnvel að þessir bréfritarar ætli að slá ryki í augu manna. Hitt er að vísu eðlilegt, að menn vilji ekki missa þau réttindi, sem þeir hafa náð í vegna undanþága, en það má ekki ráða úrslitum. Ég held satt að segja, að hæstv. ráðh. og flm. hafi ekki gert sér ljóst, hvaða afleiðingar samþykkt þessa frv. óbreytts getur haft, en þeir, sem kunnugir eru þessum málum, vita, að það veikir öryggi skipastólsins og gerir aðstöðu skólans miklu erfiðari og skólann um leið lélegri, auk þess sem það skapar ósamræmi milli manna . . . . og þessir menn geta ekki fengið réttindi nema upp að 600 hö. Þar af leiðandi er verið að sýna þessum mönnum ranglæti, ef nú á að stöðva þá þannig, að þeir geti ekki fengið nema 600 ha. réttindi, en hinir, sem ekki eru nema 2 ár og 6 mánuði á skóla, eiga að geta fengið réttindi upp á 900 hö. En þetta stafar af því, að báðir aðilar halda, að vélfræðideild og fyrri deild vélstjóraskólans sé það sama, en það er ekkert samband á milli vélfræðideildar annars vegar og vélstjóraskólans hins vegar. Þetta þótti mér rétt að láta koma fram í sambandi við þetta mál. Svo ætla ég ekki frekar að ræða þetta atriði, en vænti þess, að menn sjái hættuna af því að samþ. frv. Ég vil sérstaklega benda hæstv. ráðh. á ummæli skipaskoðunarstjóra, þess manns, sem vinnur í umboði og á ábyrgð hæstv. ráðh., og ég veit, þegar hann athugar málið, að hann leggur meira upp úr þeim vottorðum en frá manni, sem vill fá að halda vélstjóra hjá sér af því, að hann hefur reynt hann að einhverju góðu. En skipaskoðunarstjóri hefur sagt, að hann telji öryggið rýrt, ef þetta er gert, og skil ég ekki í, að hv. 1. landsk. (SÁÓ), sem hefur barizt fyrir öryggi í landinu og því, að þeirri löggjöf var komið á, skuli nú beita sér fyrir því að rýra öryggi þeirra manna, sem hefur verið afhent það mikla vandastarf. Ég veit, hver er ástæðan. Það er af því, að hann er að berjast fyrir tveimur mönnum, sem hann hefur velþóknun á og vill fá réttindi handa. Slíkt má ekki ske, en það er það, sem er að gerast, að það eru svo margir menn, sem eiga vini eða kunningja til að koma inn, án þess að uppfylla þessar kröfur. Þess vegna er það, sem það er látið ráða meira en réttindin og meira en vandinn í sambandi við málið, og ég verð að segja, að ef hæstv. ráðh. ætlar sér inn á þessa braut, hvar stendur hann eftir með að vernda önnur stéttarfélög? Það er hægt að fá menn, sem óska eftir að fá réttindi sem smiðir, þó að þeir hafi ekki verið nemendur í 4ár.

Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða málið, nema sérstakt tilefni gefist til.