10.02.1949
Neðri deild: 61. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í C-deild Alþingistíðinda. (4037)

123. mál, sýsluvegasjóðir

Flm. (Jón Sigurðsson) :

Þetta frv. er flutt eftir áskorun sýslunefndar Skagfirðinga til okkar þm. héraðsins. Saga þessa máls er sú, að 1947 var hækkað nokkuð tillag til sýsluvegasjóða, eða úr 10‰ í 12 ‰ . Það er nú fengin 2 ára reynsla, sem hefur leitt það í ljós, er raunar var vitað, að þessi hækkun var of lítil. Þetta er mjög eðlileg niðurstaða, því að lenging sýsluveganna og stóraukin umferð bifreiða hefur haft í för með sér aukið viðhald, ef vegirnir áttu að vera færir allt árið. Það er því svo komið í mörgum héruðum, að sýsluvegasjóðsframlagið hrekkur rétt fyrir viðhaldi og því ekkert til nýbygginga. Þetta hefur haft þær afleiðingar, að hreppsnefndir hafa víða orðið að taka að sér sýsluvegalagningu og taka til þess lán eða að öðrum kosti átt það á hættu, að góðar jarðir, sem ekki hafa fengið vegi, legðust í eyði. Það hefur að vísu verið látið heita svo, að sýsluvegasjóðir stæðu að þessum nýbyggingum, en þó gengið út frá, að hreppsfélögin fengju þetta ekki greitt. Af þessu má sjá, að það er ekki að ófyrirsynju, að þetta frv. er borið fram.

Ef borið er saman framlagið til sýsluvegasjóðanna, þegar þessi l. voru sett 1924, sem þá var 6‰ þá er ekkert samræmi í, að framlagið sé nú ekki nema 12‰, ef miðað er við verðlagsbreytingar í landinu.

Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um málið við þessa umr., en vænti, að því verði vísað til samgmn. að lokinni þessari umr.