17.02.1949
Neðri deild: 66. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í C-deild Alþingistíðinda. (4041)

132. mál, kirkjugarðar

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Þetta frv. barst menntmn. frá kirkjumálaráðuneytinu með ósk um það, að n. tæki frv. til flutnings. Nefndin var sammála um að verða við þeirri ósk að flytja frv. En nm. hafa óbundnar hendur um að fylgja brtt., sem fram kunna að koma við málið.

Í l. um kirkjugarða frá 1932 segir, að kirkjumrh. sé heimilt að veita leyfi til þess að taka upp heimagrafreiti, en engin nánari fyrirmæli eru í þeim l. um það, hvaða reglum skuli fylgja eða takmarkanir settar fyrir slíkum leyfum.

Þær breyt., sem farið er hér fram á, eru aðallega þrjár: Í fyrsta lagi að binda leyfi til heimagrafreita við þær jarðir, sem eru ættaróðul eða ættarjarðir, eða þær aðrar jarðir, sem liggja svo langt frá sóknarkirkju, að sérstakir erfiðleikar séu á líkflutningum þaðan. Í öðru lagi, að meðmæli héraðsprófasts skuli fylgja beiðni um upptöku heimagrafreits. Þá er og lagt til, að leyfisgjald verði hækkað úr 150 kr. í 500 kr.

Þau rök, sem færð eru fyrir þessu frv. af hálfu rn., að breyt. sú, sem að er stefnt með þessu frv., sé æskileg og nauðsynleg, eru fyrst og fremst þau, að með hinum tíðu ábúendaskiptum, sem nú eiga sér stað víða á jörðum, þá sé ekki hirt svo vel um heimagrafreiti sem æskilegt sé og nauðsyn beri til og af því leiði, að nauðsynlegt sé að setja nokkuð þröng skilyrði fyrir, að heimagrafreitir séu leyfðir.

Ég hef svo ekki fleira um þetta frv. að segja, en vænti þess, að málið verði látið ganga til 2. umr.