28.02.1949
Neðri deild: 72. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í C-deild Alþingistíðinda. (4058)
140. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Pétur Ottesen:
Ég get mjög tekið undir það, sem hæstv. samgmrh. sagði hér um þetta mál, þegar það var hér síðast til umr. Mér kom það eins og honum hálfeinkennilega fyrir sjónir, þegar flutt er frv. um það að breyta þessum ákvæðum í l. um skemmtanaskatt og þjóðleikhús, sem verið hafa í gildi um alllangt árabil, eða síðan 1927. Þegar verið var að ræða á síðasta þingi um breyt. á því, hvernig skemmtanaskattinum yrði varið, komu engar till. um að gera breyt. á þessu ákvæði l., og það var talið eins og áður, að sjálfsagt væri að láta slík undantekningarákvæði gilda. Eins og hæstv. samgmrh. drap á, fellur starfsemi nokkurra kvikmyndahúsa undir þetta ákvæði. Ágóðanum af rekstri þessara stofnana er ýmist varið til styrktar menningarmálum eða mannúðarmálum. Það er að vísu nokkur árangur, sem rekstur þessara kvikmyndahúsa ber, og þess vegna fellur árlega nokkurt fé til þess að styrkja þessi málefni, menningarmál og málefni, sem miða að almenningsheill. Hæstv. samgmrh. minntist á, hvernig ástatt væri um þetta efni í hans kjördæmi, Hafnarfirði, þar sem bæjarfélagið hefur tekið upp bíórekstur, sem er síðan látinn bera uppi menningarstarfsemi þar í kaupstaðnum. Í mínu kjördæmi skeði sá atburður fyrir nokkrum árum, að fórnfús og göfuglynd hjón, Haraldur Böðvarsson og kona hans, Ingunn Sveinsdóttir, gáfu kaupstaðnum fullbyggt bíóhús, sem kostaði víst um eina milljón króna, og kváðu svo á í skipulagsskrá, sem um þessa starfsemi er sett, að tekjunum af rekstri kvikmyndahússins skuli fyrst og fremst vera varið til að standa undir að koma upp sjúkrahúsi á staðnum og reka það og til þess að byggja elliheimili og standa að nokkru leyti undir rekstri þess. Sú reynsla, sem fengizt hefur af rekstri þessa húss, sýnir, að þessum mikilsverðu málefnum kaupstaðarins er að þessu mikil hjálp. Tekjurnar hafa verið upp undir 100 þús. kr., á síðasta ári að vísu nokkru lægri upphæð. Þessu fé hefur verið varið til að koma upp allmyndarlegu sjúkrahúsi á Akranesi og umbæta mikið elliheimili, sem búið var að koma þar á fót. Tekjurnar verða í framtíðinni til að standa undir þessum rekstri.
Ég skýri frá þessari sérstöku aðstöðu þarna á Akranesi með tilliti til þess, að mér finnst, að undantekningarákvæði þessara l. séu í alla staði eðlileg, þegar tekjunum af þessum rekstri er varið á þann hátt, sem gert er í Hafnarfirði, á Akranesi og kannske víðar, til framgangs ýmsum menningarmálum. Ég verð þess vegna að láta í ljós undrun mína eins og hæstv. samgmrh. yfir, að frv. skuli vera komið fram um að fella undantekningarákvæði gildandi l. um kvikmyndahúsarekstur í þessu augnamiði algerlega niður. — Þá er mér ekki síður undrunarefni það orðalag, sem haft er um þetta í þeirri grg., sem fylgir þessu frv., þar sem talað er um, að skattundanþága þessi sé mjög óeðlileg. Og í niðurlagi grg. er talað um, að með samþykkt frv. sé verið að létta af óviðurkvæmilegu misrétti, sem hér eigi sér stað. Þetta er vissulega harður dómur, sem þarna er felldur um þessa starfsemi, þar sem það er kallað óviðurkvæmilegt að kveða svo á í löggjöfinni að veita undanþágu hvað þetta snertir. Ég veit satt að segja ekki, í hvers konar hugarástandi flm. þessa frv. hafa verið, þegar þeir gengu frá þessu frv. og kváðu þannig á um þetta í grg. Það er nokkuð mikið sagt með því að tala um óviðurkvæmilegt misrétti í þessum efnum, þar sem þetta undantekningarákvæði er svo þröngt skorðað eins og það er í l., að það er eingöngu bundið við, að tekjunum af rekstri þessara fyrirtækja sé varið til framdráttar nauðsynlegum menningarmálum og mannúðarmálum, eins og vissulega er gert, þegar verið er að bæta sjúkrahúsakostinn í landinu og búa í haginn fyrir gamalt fólk og örvasa, sem getur ekki sjálft séð sér farborða hvað viðurværi og húsakost snertir. Það er einkennileg túlkun á hugsunarhætti Íslendinga gagnvart þessum mikilsverðu menningarmálum að kveða svo að orði um þau sem gert er í þessari grg. Ég veit, að þetta er engan veginn innri maður hv. flm., heldur hafa þeir sett þetta fram í einhverju fljótræði og af því að þeir hafa engan veginn sett sig inn í, hvaða þýðingu þetta ákvæði hefur. Ég vil ekki með nokkru lifandi móti leggja annan skilning í það.
Ég vil líka mega vænta þess, eins og ég óska, að d. líti líkt á þetta mál og hún hefur áður gert og undirstriki nú sem fyrr, að þessi undantekningarákvæði skuli standa óhögguð, að þessir hv. flm. geti líka fallizt á, að það sé ekki rétt eða sanngjarnt eða eðlilegt að gera þá breyt., sem hér hefur verið lögð til í þeirra frv., þegar þeir hugsa þetta mál meir í ró og næði og athuga það nánar, en þeir sýnilega hafa gert, þegar þeir gengu frá þessu frv. og skrifuðu þá grg., sem því fylgir.
Ég skal fyllilega viðurkenna, að skemmtanaskattinum, eins og honum var ráðstafað á síðasta þingi, sé skynsamlega ráðstafað. Honum er varið til þriggja aðila, í fyrsta lagi til að koma upp æskulýðsheimilum í sveitum, í öðru lagi til að standa undir rekstri þjóðleikhússins, fyrst farið var inn á þá braut, að ríkið taki þá starfsemi upp á arma sína, sem nokkuð skiptar skoðanir voru um á sinni tíð. Í þriðja lagi á að verja tíunda hluta af skemmtanaskattinum til þess að styðja bókasafnastarfsemi í landinu og kvikmyndagerð af ýmsum þjóðlegum háttum hjá okkur. Eins og ég gat áður um, kom engum til hugar, þegar þessi breyt. var gerð, að undanfella þau ákvæði, sem lagt er til að fella niður í þessu frv. Svo sjálfsagt var það talið af öllum. Og ef miðað er við þau framlög, sem við teljum okkur hafa ráð á að leggja til ýmissa framkvæmda í landinu, eins og skólabygginga og annars, er snertir menningarmál og þess háttar, þá verður að telja, að það framlag sé allríflegt eftir þeim upplýsingum, sem hv. 1. flm. gaf hér, þegar hann reifaði þetta mál. Ég tók svo eftir, að þær tekjur, sem falla til byggingar æskulýðsheimila, séu um 1 millj. kr. Þá skilst mér, að um 800 þús. kr. fari til þjóðleikhússins og 200 þús. til annarrar starfsemi, sem á að verja þessu fé til. Og miðað við framlög af hálfu ríkisins til hliðstæðra mála þá verður að telja þetta sæmilega úrlausn á einu ári, þó að það nái að sjálfsögðu skammt á móti þeim óskum, sem uppi eru hverju sinni, en þó sækist þetta smám saman, þótt hægt sé, þannig að allmiklu verður hægt að koma til vegar á næstu 5–10 árum af því, sem ógert er í þessu efni. Við þekkjum það, sem erum í fjvn., að það er ekkert smáræði, sem stendur upp á ríkið að veita samkvæmt l. til ýmissa nauðsynlegra framkvæmda í landinu. Það eru ekki fáar milljónir eða milljónatugir, en fjárveitingar til hafnargerða eru á eftir því, sem lög gera ráð fyrir, að veitt sé úr ríkissjóði til þessara framkvæmda. Og ef maður tekur skólabyggingarnar, þá mun þetta vera þar enn þá meira. Mér skilst því, að hér komi fram allt of mikið bráðlæti og ekki sé rétt að ganga svo langt í þessu efni, að það gangi út yfir menningar- og mannúðarstarfsemi, sem studd er í þessu efni með núverandi löggjöf. En þó að ég sé á móti þessu máli, þá er ég ekki á móti því, að það gangi sinn þinglega gang og fari til n., og ég vænti, að sú n. athugi þetta mál vel, því að hún hlýtur þá að komast að þelrri niðurstöðu, að ekki sé viðeigandi eða gerlegt að skerða þann styrk, sem slík fyrirtæki fela í sér fyrir menningar- og mannúðarmál þjóðarinnar. Æskilegt væri, að það ætti sér stað í sem flestum tilfellum, að menn, sem eru nokkurn veginn vel á vegi staddir fjárhagslega, létu af hendi rakna fé til slíkrar menningar- og mannúðarstarfsemi og legðu þannig grundvöll að því fyrir framtíðina, að aðstaðan til að vinna að þessum málum verði verulega bætt. En það er vitanlega engin uppörvun fyrir menn að gera þetta, ef farið verður að seilast eftir þessu framlagi og draga það frá sínu ætlunarverki yfir í ríkissjóð til ýmissa annarra framkvæmda. Það er engin uppörvun fyrir þessa menn að vinna með þessum hætti að menningar- og mannúðarstarfsemi í landinu, og mér skilst, að það sé varhugavert fyrir Alþingi að slá þannig á útrétta hönd manna í þessu efni. Það ætti frekar að örva og glæða þann hugsunarhátt og a. m. k. viðurkenna hann, en vera ekki að draga úr honum með því að láta ríkið teygja krumlur sínar ofan í þann sjóð.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta, en vænti þess aðeins, að sú vernd, sem l. hafa veitt að þessu leyti, verði að engu leyti skert.