01.03.1949
Neðri deild: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 525 í C-deild Alþingistíðinda. (4065)

140. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Aðeins örfá orð í tilefni af ræðu hv. 7. þm. Reykv. (JóhH) í gær, þegar þetta mál var síðast til umr. Hv. 7. þm. Reykv. lét þess getið, að sérstök þörf væri á því, að mál þetta færi til n. til athugunar á því, hvort ýmis þeirra kvikmyndahúsa, sem nú greiða ekki skemmtanaskatt, ættu í raun og veru að njóta þessara réttinda. Ég vildi einungis taka það fram vegna þess kvikmyndahúss, sem mér er sérstaklega kunnugt um, kvikmyndahúss sáttmálasjóðs eða háskólans, að leitað var dómsúrskurðar um það, hvort það kvikmyndahús ætti að greiða skemmtanaskatt eða ekki. Það greiddi fyrst um skeið skemmtanaskatt, en leitaði síðan úrskurðar dómstólanna um, hvort það ætti að gera þetta eða ekki, og úrskurður dómstólanna varð sá, að það skyldi ekki vera skemmtanaskattskylt. Ég hygg, að líku máli gegni um a. m. k. bæjarbíóið á Akranesi, að dómsúrskurður sé líka fyrir því, að það sé ekki skemmtanaskattskylt, og getur vel verið, að slíkur dómur hafi gengið um nær öll kvikmyndahús, sem þessu sama máli gegnir um.

Annað atriði var í ræðu hv. 7. þm. Reykv., sem ég vildi andmæla, þ. e. að kvikmyndahús sáttmálasjóðs eða háskólans mundi e. t. v. hafa gert yfirboð í kvikmyndir erlendis, og það sumpart kannske vegna fríðinda, sem hv. þm. nefndi svo, er þetta kvikmyndahús hefði. Mér er ekki kunnugt um, að nokkur slík yfirboð hafi verið gerð af hálfu þessa kvikmyndahúss. Og í öllu falli er óhætt að fullyrða, að þessi ákvæði, að því er snertir skemmtanaskattsgreiðslu, skipti þar engu máli.

Ég vildi svo ítreka það, sem ég sagði í gær um þetta mál, að mér virtist meginröksemdirnar fyrir því, að samþ. bæri þetta frv., vera byggðar á algerum misskilningi. Það er rangt, að hér sé um að ræða eitthvert misrétti, sem þessu frv. sé ætlað að bæta úr. Það er þvert á móti þannig, að frv. þetta stefnir að því að koma á misrétti, og það verður alveg augljóst, ef eftirfarandi er athugað. Ég geri ráð fyrir, ef þetta frv. næði fram að ganga og ef einhver aðili kæmi upp — við skulum segja danssal eða stofnaði fyrirtæki til kabarettsýninga eða til þess að reka skautahöll eða slíkt, og ef þetta fyrirtæki verði hagnaði af rekstri sínum til elliheimila eða sjúkrahúsa eða vísindastarfsemi, að þá væri þessi rekstur skemmtanaskattfrjáls eftir sem áður. En ef aftur á móti komið væri upp kvikmyndahúsi til þess að afla tekna nákvæmlega í sama skyni, til byggingar og rekstrar elliheimila, sjúkrahúsa eða því um líks, þá yrði sá rekstur skemmtanaskattskyldur. Hér væri því með samþykkt þessa frv. verið að koma á misrétti, en ekki að afnema misrétti. Sá skemmtanaskattur, sem almenningur nú greiðir af skemmtunum, sem eru skemmtanaskattskyldar, fer að langmestu leyti til þjóðleikhússjóðs eða félagsheimila, en nokkuð til lestrarfélaga og kennslukvikmynda. Þau kvikmyndahús, sem verja hagnaði sínum til elliheimila, sjúkrahúsa, vísindastarfsemi og tónlistarstarfsemi og annarra menningarmála, njóta nú algers jafnréttis eftir gildandi lögum við önnur fyrirtæki, sem slík málefni styðja. Það, sem farið er fram á með þessu frv., er að afnema þetta jafnrétti. Það er farið fram á, að hér eftir skuli þjóðleikhússjóður, félagsheimilasjóður og lestrarfélög og kennslukvikmyndir fá innheimtan skemmtanaskatt af kvikmyndahúsum, sem nú rennur til sjúkrahúsbygginga, bygginga elliheimila og til vísindastarfsemi og tónlistarstarfsemi. Með flutningi þessa frv. er verið að reyna að ná í þann skemmtanaskatt, sem nú gengur til hinna og annarra mikilvægra þarfa á menningarmálasviðinu, og bæta honum við það, sem nú rennur til þjóðleikhússjóðs, félagsheimilasjóðs og lestrarfélaga og kennslukvikmynda. Það er ekki að afnema misrétti, heldur að auka það.