01.03.1949
Neðri deild: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í C-deild Alþingistíðinda. (4067)
140. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja umr. um þetta mál mikið. Hv. meðflm. minn, 1. flm. þessa frv., þm. N-Ísf., hefur nú bæði gert grein fyrir málinu og svarað flestum þeim atriðum og mótbárum, sem menn hafa haft gegn því. Ég gat nú búizt við því, að einhverjir væru hér á hæstv. Alþ., sem ekki kysu að gera breyt. á gildandi löggjöf um þessi efni. En ég hafði viljað ætla, að það hefði samt sem áður verið hægt að hreyfa andmælum og drepa á þau atriði í þessu máli eins og fram hefur komið, að menn hafa gert, — ég hafði gert ráð fyrir, að það væri hægt án þess að viðhafa alveg sérstaka fordóma um málið, eins og þó kom fram í ræðu hæstv. samgmrh., að hann gerði, þar sem hann hélt fram, að þetta mál væri svo fráleitt, að það ætti engan rétt á sér og ætti ekki einu sinni að fara til n. Mér skildist á ummælum hæstv. samgmrh., að hann teldi, að þetta frv. væri eiginlega ekki þinghæft mál. (Samgmrh.: Það er alveg rétt.) Ja, það kann nú að vera, að dómi hæstv. ráðh. En ég er ekki viss um, þegar hann athugar þetta betur, nema það kynnu þá að vera nokkuð mörg mál, sem með ekki minni rétti mætti segja, að væru ekki þinghæf, og jafnvel þó að þeirri löggjöf, sem er í gildi um þetta efni, sé býsna ábótavant. Og vissulega er það svo, að vafalaust má telja, að hún eigi eftir að breytast, þannig að ákvæðum hennar verði breytt frá því, sem nú er, og mætti þá segja, að meðan hún stendur eins og hún er nú, væru þetta ekki hæfileg lög.
Hvað er það þá, sem farið er hér fram á með þessu frv.? Það er það, að það sama gildi um alla, þ. e., að þessar stofnanir hafi sömu aðstöðu gagnvart skattalögunum, þannig að það standi eins á um greiðslur til hins opinbera hjá þessum stofnunum öllum, sem hafa sama rekstur. Þetta er það, sem farið er fram á í frv. Og hvað er svo sagt um ráðstöfun þessa fjár, sem á að koma til ríkissjóðs eftir þessu frv.? Það, að farið sé eins með það og gildandi lög mæla nú fyrir um. Þetta er efni málsins, og mér finnst það ákaflega hart, að viðhöfð séu þau ummæli um þetta mál, — þar sem þessu er ekki hægt að mótmæla, sem ég tók nú síðast fram, — að þetta mál sé ekki þinghæft mál, og það megi þess vegna ekki athuga málið í n. Ég tel nú, að þetta hafi verið sagt í fljótræði og í einhverjum hita, og ég vil því ekki gera mikið úr þessum ummælum. Ég skil ekki, hvernig þetta frv. getur verkað á menn, en ég vil vona, að hv. þdm. lofi málinu að fara til n. og fá þar meðferð. Og þá get ég sagt fyrir mitt leyti, að sé nú eitthvað í starfsemi þessara stofnana, sem þetta frv. tekur til, sem er svo mikils varðandi fyrir þjóðina, að það megi ekki skattleggja þessi fyrirtæki á þann veg sem gert er ráð fyrir í þessu frv., þá er alveg sjálfsagt að gera þar undantekningar frá skattskyldu að meira eða minna leyti. Ég hef ekki þann kunnugleika á þessum hlutum og sérstaklega ekki á því, hvernig er með þessa fjármuni farið, sem hlíft er með þessum fríðindum viðkomandi skattgreiðslu hjá þessum fyrirtækjum, en þetta er atriði fyrir þá n. að athuga, sem málið fengi til meðferðar. Og þegar hv. n. er búin að kynna sér það, þá tekur hún vitaskuld sínar ákvarðanir gagnvart málinu um það, hvort það skuli halda lengra áfram í þessu formi, sem það hefur, eða breytt eða þá alls ekki. Þetta er sú þinglega meðferð, sem á að vera á málum, þar sem ekki blasir eitthvað sérstakt við, sem ekki þarf neinnar athugunar við eða frekari kunnugleika en þm. hafa til þess að kveða á um það þegar í byrjun, hvernig með mál skuli fara.
Það hefur komið fram hér sú skoðun, að ef þessu bíói t. d., sem notað er í þjónustu tónlistarinnar, væri gert að greiða skemmtanaskatt, sem nú er skattfrjálst til hins opinbera viðkomandi greiðslu skemmtanaskatts, þá væri með því verið að skattleggja tónlistina og sömuleiðis, að af því að háskólinn starfar að einhverju leyti að vísindum, þá sé verið að skattleggja vísindastarfsemina með því að láta háskólabíóið greiða skemmtanaskatt. Hvers konar tal er þetta? Er það þá sá eini vinningur, sem þessar stofnanir hafa af þessum rekstri kvikmyndahúsanna, sem þau njóta lögum samkvæmt hagnaðar af? Er sá eini vinningur þeirra í þessu efni það, sem nemur þessum skatti, ef þau ættu að greiða hann í ríkissjóðinn? Er þá ekki meiri arðsemin af rekstrinum en þetta? Ég hafði haldið a. m. k. eftir því, sem talið er, að kvikmyndahús í einkarekstri gefi mikinn arð, að þá mundi verða af hagnaðinum á rekstrinum talsverður afgangur, þó svo að þessar stofnanir greiddu þennan skatt. Og það er ekki lítill styrkur fyrir þessar stofnanir og starfsemi að mega reka þessa starfsemi, kvikmyndahúsin. Það eru fríðindi út af fyrir sig, sem þessar stofnanir fá lögum samkvæmt. Hitt er hægt að viðurkenna, að enn meiri fríðinda njóta þessar stofnanir með því að mega hafa þennan rekstur líka skattfrjálsan. Háskólinn hefur sáttmálasjóð. Ég hefði haldið, að það væru fríðindi. Og hann hefur svo þennan kvikmyndahúsrekstur skattfrjálsan. Og þó að háskólinn greiddi þennan skemmtanaskatt til hins opinbera, eins og annar kvikmyndahúsarekstur verður að gera, þá væri sannarlega ekki verið að skattleggja vísindin fyrir því. Nei, það er ekki hægt í þessu efni að komast lengra í röksemdunum til að mæla á móti skattlagningu Háskólabíósins, en það að segja, að það væru skertir með samþykkt þessa frv. þeir fjármunir, sem háskólinn fær nú með tekjum af þessum rekstri. En það, sem kom fram í ræðu hv. meðflm. míns, hv. þm. N-Ísf., er það, að þessar stofnanir, sem frv. tekur til, njóta hagkvæmari aðstöðu til samkeppni um myndaval og myndaleigu erlendis, en önnur slík fyrirtæki. Og ef svo er, þá er það ekki svo æskilegur vinningur við þessi skattfríðindi, ef þessi fríðindi kynnu að vera notuð að meira eða minna leyti til þess að láta sig minna varða, hvort borguð er meiri leiga fyrir myndirnar, og þá verður það ekki góðgerðastarfsemi fyrir þjóðfélagið, sem hefst með þessum fríðindum, og ekki heldur stuðningur við vísindastarfsemi, heldur væru það peningar, sem teknir væru úr vasa þjóðarinnar og farið með til útlendinga og aldrei kæmu aftur okkur til góða. Ef mikil brögð væru að slíku, gæti það étið sig upp, sem gert væri fyrir þessi fyrirtæki með því að láta þau ekki greiða skemmtanaskatt. Ég fullyrði ekki, að mikil brögð séu að þessu, en eitthvað mun sennilega vera af þessu. Eftir að ummæli þessi féllu hjá hv. meðflm. mínum, spurðist ég fyrir um þetta. Og ég held, — því miður, verð ég að segja, — að þetta sé ekki alveg úr lausu lofti gripið.
Nú get ég viðurkennt það, en það er allt annað mál, að sú starfsemi í þessari grein, sem rekin er af bæjarfélögum og arður af er notaður í sérstöku augnamiði, eins og mér er sagt, að sé, — en ég heyrði ekki fyrri ræðu hv. þm. Borgf., — ef það er eitthvað alveg sérstakt, sem er mjög gagnlegt og nytsamt og þarf að gera, sem gert er með arðinum af þessum rekstri hjá bæjarfélögum, — og hæstv. samgmrh. hefur drepið á, til hvers fjármunir þessir, sem fást inn t. d. með Hafnarfjarðarbíóinu, eru notaðir, — þá er sjálfsagt að líta á slíkar aðstæður og athuga það í sambandi við breyt. á löggjöfinni, ef hún yrði gerð, hvert tillit skyldi taka til þessa atriðis. Ég er ekki svo einstrengingslegur, að ég vilji endilega undir öllum kringumstæðum, að enginn munur sé gerður á því, til hvers fjármunirnir, sem fást með arði af þessum fyrirtækjum, sem hér koma til greina, eru notaðir. En það vil ég, að fullkomlega sé tekið til athugunar, og það þykist ég vita, að hv. meðflm. minn vilji líka, að sé gert. En ég kann hv. þm. Borgf. þakkir fyrir það, að hann vill, að málið fái fullkomlega þinglega meðferð og verði athugað gaumgæfilega, því að það skal ég játa, að ef málið hefur eitthvað það í sér fólgið, sem alls ekki ætti að vera, og það kæmi fram við nánari athugun, vildi ég ekki halda því til streitu, að það skyldi endilega fá samþykki Alþingis.
Viðvíkjandi því, sem hv. þm. Borgf. drap á ákvæði um starfsemi sjóða, þá held ég, að þetta taki nú ekki neitt til þeirra. (PO: Nei, það tekur ekki til þeirra, ég benti bara á þetta í sambandi við þetta mál.) Það eru margvísleg sérákvæði um starfsemi og viðgang sjóða. Þeir eru margir og mismunandi, en þetta mun ekki grípa inn í það, sem þeim er ætlað að vinna.
Ég get tekið fram nú, einmitt í sambandi við kvikmyndahúsrekstur háskólans, að það er nú meiningin, að þeir fjármunir, sem kæmu inn af þessum skemmtanaskatti, færu til menningarstarfsemi, að vísu ekki til vísindastarfsemi, en til menningarstarfsemi. Það, sem gengur til þjóðleikhússins og til lestrarfélaga og kennslukvikmynda, er meiningin að fari til menningarstarfsemi, því að það er vissulega meiningin, að þær stofnanir starfi að aukinni menningu þjóðarinnar. Og ég vil meina fullkomlega, að þá fjármuni, sem ganga til félagsheimila, megi líka færa undir þetta, eins og sú starfsemi er hugsuð og eins og við vonum að hún verði. Við vonum, að hún verði til þess að auka menningu þjóðarinnar. Og ég vil í því efni skírskota til eins félagsskapar í þessu landi, sem átti við þröngan húsakost að búa, en hefur látið gott af sér leiða, sem er starfsemi ungmennafélaganna, þegar þau byrjuðu á sínum fyrstu starfsárum. Og þau létu áreiðanlega lengi gott af sér leiða, og ég vil vona enn. Menn ættu því alls ekki að viðhafa þau orð um það að koma upp slíkum heimilum sem þessum, að þau séu danssamkomustaðir. Og enda þó svo að það kæmi fyrir, að saklaus gleði yrði viðhöfð í þeim húsum annað veifið, þá ætla ég ekki, að það yrði til neins niðurdreps á menningu þjóðarinnar. Og þá hygg ég, að það færi að verða bágborin niðurstaðan um ýmsar skemmtistofnanir, sem komið hefur verið upp í kaupstöðunum, ef slíkum samkomum í samkomuhúsum í sveit fylgdi það, að þær yrðu heldur til hindrunar menningu þjóðarinnar en hitt, og það finnst mér, að menn megi ekki álíta um þessi samkomuhús í sveit. Og sé þar í einhverju áfátt, þá eru þau stjórnarvöld til, sem eiga að gefa því gætur, og ættu þau að lagfæra það, sem þar kynni ábótavant að vera. Það er jafnvel í vísindastarfseminni þannig, að misjafn er sauður í mörgu fé. Það eru til vísindamenn, sem ætlað er, að þeir starfi að vísindum, en nota aðstöðu sína til þess að reyna að blekkja með vísindamannsnafns yfirvarpi, og dettur engum í hug að fordæma vísindastarfsemina, þó að í vísindamannastétt hafi fundizt maður, sem ekki var þess verðugur að fást við vísindastarfsemi.
Hv. 4. þm. Reykv. (GÞG) talaði um, að það væri svo fjarri því, að þetta frv. væri til þess fallið að minnka misrétti, heldur mundi samþykkt þessa frv. verða til þess að auka á misrétti. Jahá, ég skil nú þetta ekki. Það kann nú að vera, að ég fylgi ekki vísindunum að málum. (GÞG: Nei, hv. þm. gerir það ekki.) Hvað er þá í þessu frv.? Það, að lagt er til að setja allar þessar stofnanir á sama bekk, sem hafa sams konar rekstur, gera þeim jafnt undir höfði öllum viðkomandi skattgreiðslum til ríkisins. Nú skal ég slá þann varnagla, að það sé ekki endilega víst, að þetta sé réttlátt. En þetta er það, sem frv. fer fram á. Er þetta þá misrétti? (GÞG: Já, það er misrétti.) Það er nú þegar gerður mismunur í því sambandi. Það er ágætt hjá hv. þm. að grípa fram í. Þessi hv. þm. vill halda fram, að það sé enginn mismunur nú á því, hvernig aflað er tekjustofna í þessu sambandi. Þessar stofnanir selja alla bíómiða. Ég veit ekki til þess, að það sé fyrirskipaður neinn verðmunur í miðasölunni. Eða er það? Ég ætla, að verðið sé það sama fyrir bíómiða hjá öllum bíóum, þeim sé heimilt að selja þá við sama verði öllum, þar er enginn munur gerður á, svo að þarna er þá jafnt á komið. En þá kemur til á hinn bóginn meðferð fjárins, sem aflað er á þennan hátt, og þá kemur fram þessi munur, að nokkur bíó þurfa ekki að greiða skatt til ríkisins af þeim ágóða, sem þau hafa af aðgöngumiðasölu, en önnur bíó þurfa að borga þennan skatt. Ég skal þá gera hv. 4. þm. Reykv. það til geðs að segja, að það sé alveg jafnt á komið um aðstöðuna hjá öllum þessum stofnunum um að afla peninganna. En munurinn liggur þá í því, hvað þarf að greiða af því, sem kemur inn af þessum peningum, og það er einmitt þessi mismunur, sem við viljum leiðrétta, sem flytjum þetta frv. Þarna er misrétti, sem í þessu er fólgið. En hv. 4. þm. Reykv. nægir ekki, að háskólinn og Tónlistarfélagið eigi tryggð þessi fríðindi, sem þau hafa, að mega reka þessi fyrirtæki, nema þau fái allan arðinn af rekstrinum alveg skattfrjálsan. Og svo segir hv. 4. þm. Reykv. og er ákaflega fljótur að álykta út frá þeim rökum, sem hann er búinn að skapa sér, að með því að færa meiri tekjur til þjóðleikhússjóðs og félagsheimila og lestrarfélaga og kennslukvikmynda, í því sé fólgið aukið misrétti. Hvað viðkemur félagsheimilunum, þá er um þau það að segja, að þau fá dálítinn styrk til þess að koma upp byggingum sínum, ekki til rekstrar þeirra. Það, sem hins vegar gengur í þjóðleikhússjóð, það á að vera til styrks til starfs, og það, sem gengur til lestrarfélaga og kennslukvikmynda, hygg ég. að verði eyðslueyrir við starf þessara stofnana jafnóðum til þess að auðvelda starfið, sem þó er menningarmál. En að því er snertir félagsheimilin, þá er ætlað, að þessi styrkur sé til þess að koma upp byggingum þeirra, en þau halda ekki þessum fríðindum áfram um styrk eftir það, hvert fyrir sig, en það gera þjóðleikhúsið og lestrarfélög og kennslukvikmyndir.
Ég býst við, að þeir, sem að þessari starfsemi standa, verði að láta mikið af mörkum og er miklu gagnlegri starfsemi en kvikmyndahúsastarfsemi hér, því að margar kvikmyndirnar eru afskaplega lélegar. Ég skoða ekki daglega myndir hjá háskólanum og tónlistarfélaginu og skal því ekki gera upp á milli þeirra, en býst við, að þær séu svona upp og ofan, og ég held, að starfsemi sú, sem við flm. viljum styðja, sé engu síður mikils virði, en bíórekstur þessara stofnana, þó að það séu góðar stofnanir. Þær hafa þarna hlunnindi og mega gjarnan hafa þau áfram.
Viðvíkjandi öðrum atriðum, þá fer ég ekki nánar út í þau, en vona, að d. sendi málið til n., og er þá hægt að ræða það nánar.