02.02.1949
Efri deild: 52. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

2. mál, síldarbræðsluskip

Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti. Út af þeim ummælum, sem hér hafa fallið um þetta mál, þykir mér hlýða, að ég geri grein fyrir minni afstöðu, þó að hún sé að nokkru leyti ljós í því nál., sem ég hef skrifað undir. Það er rétt, sem skýrt var frá af hv. frsm. minni hl., að nm. voru sammála um það, að undirbúningur máls þessa hefði mátt vera á annan hátt, en fram hefur komið. Ég heyrði nú að vísu ekki alla ræðu hæstv. samgmrh. En mér skildist á honum, að hann teldi, að sá undirbúningur hafi verið eðlilegur, nánast sagt, og ekki neitt við hann að athuga. Ég vil ekki á neinn hátt deila á hann fyrir þennan undirbúning. Gallarnir á undirbúningi málsins eru að sjálfsögðu þeirra, sem eru ráðamenn og eigendur þessa umtalaða skips. Og um leið og þeim dettur í hug, í góðri trú, skal ég undirstrika, að hér sé kannske um þjóðþrifamál að ræða í slíkum skipakaupum, hefði þeirra fyrsta verk átt að vera að leita til stj. viðvíkjandi 12 ára aldursákvæðinu, því að ég geri ráð fyrir, að þeim hafi verið kunnugt um það. Þetta hefði átt að útkljást áður en leitað var til fjárhagsráðs og viðskiptanefndar. Og þetta kemur beint fram í okkar nál. En ég ætla ekki þeim mönnum, sem hér er um að ræða, að hafa viljað brjóta lögin og flytja inn skipið þegjandi og hljóðalaust. Nú er komið sem komið er. En um þetta atriði eru meiri og minni hl. nokkurn veginn sammála, að form og undirbúningur málsins er stórgallaður. Það er búið að kaupa skipið og greiða og flytja til landsins, skrásetja það íslenzkri skrásetningu og númeri, setja á íslenzk skjöl, eins og lög um skráningu skipa mæla fyrir um. Og skipið er hér. Ég tel, að þessi ráðstöfun hafi verið réttlætanleg jafnvel þó að skipið sé þetta gamalt, og er ég þar alveg sammála minni hl. með tilliti til þeirra vottorða, sem fyrir liggja um ásigkomulag skipsins, og einnig hins, hvernig á að nota það. Skipinu er ekki ætlað að sigla um höfin, heldur að liggja í höfnum. Það bezta, sem heitir sigling, er að sigla milli innlendra hafna sennilega á þeim tíma árs, sem flestum fleytum er fært áhættulaust að hreyfa sig milli hafna. Ef til vill hefur verið tekið með í reikninginn, að skipti þarf að sigla a.m.k. einu sinni á ári til erlendrar hafnar, þótt ekki sé nema til þess að fá botnhreinsun og aðrar lagfæringar, sem e.t.v. er ekki hægt að inna af höndum hér, vegna þess að okkur skortir tæki. Ég tel þetta ekki ógerlegt, ef valinn er sá tími, þegar ekki er allra veðra von. En af þeim upplýsingum, sem fyrir n. lágu umfram það, sem fram kemur í nál. sjútvn. Nd., kom það fram í ræðum beggja frsm., að við kölluðum á fund okkar þann mann, sem var aðalráðamaður félagsins um kaup á skipinu, Ólaf Sigurðsson verkfræðing, núverandi forstjóra landssmiðjunnar. Hann færði ýmis rök fyrir því, að ásigkomulag skipsins væri þannig, að hann teldi verjanlegt að kaupa það. Við erum í sjálfu sér ekki fulldómbærir, hvort hægt sé að gagnrýna þær niðurstöður, sem hann komst að. Vil ég ekki gera neina tilraun til slíks. Mig brestur þar að sjálfsögðu sérkunnáttu. Verður að leggja nokkuð mikið upp úr hans umsögn í þessu efni. Skipið er að vísu þetta gamalt, en ástand þess er ekki í samræmi við aldur þess. Svo er annað, sem mér er nokkuð mikið atriði. Ég hef þegar lýst því, að ég tel það verjanlegt, úr því sem komið er, að leyfa innflutning skipsins í því ástandi, sem það er, og með þeim umbótum, sem það hefur fengið, til þess að vera það, sem því er ætlað að vera, fljótandi síldarverksmiðja, jafnvel þó gripið hafi verið til þess að breyta l. um innflutning skipa. Vil ég ekki gera þær ráðstafanir ógildar. En eftir að skipíð kemur heim, og að nokkru leyti áður, er búið svo um skipið, að það geti fullnægt sínu ætlunarverki. Til þess þurfti að gera yfirbyggingu á skipinu og hana allmikla. Í þá yfirbyggingu eru settar vélar. Mun vera nálægt því 415 þungalestir, sem settar eru ofan á höfuðþilfar skipsins. Nú liggur í augum uppi, að með þessum hætti er stöðugleiki skipsins ekki sá sami og áður. Að vísu er gert ráð fyrir því, að í botni gamalla skipa eigi að vera það mikill þungi, bæði af vatni og af brennsluolíu, sem geri það að verkum, að stöðugleikinn eigi að geta verið nokkurn veginn öruggur, þó að þessi yfirbygging hafi verið sett í skipið. En hver, sem hefur litið á skipið, mun sjá, að yfirbyggingin er mjög fyrirferðarmikil, eins og við bentum Ólafi verkfræðingi á. Hér skapast í hvassviðri, ég tala nú ekki um í fárviðri, mikill vindflötur, ef skipið hefur hliðarvind. Þess vegna hef ég lagt nokkuð mikið upp úr því, að skipið ætti ekki að sigla nema í allra öruggasta veðri, svo að alls öryggis væri gætt, en upphaflega var ætlazt til, að það lægi aðallega hér á höfnum. (HV: Sem sé hæpið að sigla því milli landa.) Ég vil ekki gerast dómari hér um það, og í tilefni af því hef ég spurzt fyrir um það, hvort búið væri að veita skipinu haffærisskírteini. Skipaskoðunarstjóri svaraði því, að það væri ekki búið enn þá, og sagði, að ég væri ekki sá eini, sem hefði gert fyrirspurn um þetta, t.d. væru vátryggingarfélög, sem hefðu spurt um, hvort hér væri um fullkomið öryggi að ræða gagnvart þeim, en ég hafði aðallega öryggi mannslífanna í huga. En skírteinið hefur ekki verið gefið út enn þá, og athugun á haffæri skipsins stendur yfir. M.a. er Ólafur Sigurðsson skipaverkfræðingur við þá athugun riðinn. Hann hefur gert bráðabirgðaathugun á stöðugleika skipsins, og einnig er maður frá skipaeftirlitinu að framkvæma þessa athugun. Fari nú svo, að þeir telji haffæri skipsins öruggt, þá getur hvorki ég né aðrir neitt sagt, reynslan verður þá að skera úr því, hvort sá dómur er réttur eða ekki. En fyrir mér er það nokkur ótti, ef öðruvísi verður farið að í þessu efni en til var ætlazt, og að gefnu tilefni vil ég spyrja hæstv. ráðh. sjávarútvegsmála eða hæstv. viðskmrh., hvort ætlunin sé að sigla skipinu yfir Atlantshaf um hávetur, og þá sennilega farmlausu, en með þá botnfestu, sem eftirlitið krefst. Ég vildi gjarnan fá þessu svarað. Það gengur hér fjöllunum hærra, að skipið eigi að bræða í norskri landhelgi, og ef svo er, vildi ég spyrja, hvort það eigi að vera innan skerja eða úti á hafi. Þetta er alveg ný áætlun með þetta skip, ef satt er, og fráhverf frá því, sem áður var ætlunin. Hér er að ýmsu leyti um nýtt viðhorf að ræða. Um þetta vildi ég fá upplýsingar, því að ég veit ekki, hvernig hv. dm. líta á þessa hlið málsins.

Ef frv. þetta er fellt, er skipið þar með komið algerlega heimildarlaust inn í landíð, og ég sé ekki, að það gæti þá siglt undir íslenzkum fána, og þá hygg ég, að ekki væri hægt að skrásetja það, og yrði þá að afturkalla þá skrásetningu, sem þegar hefur verið gerð. Það yrði afleiðingin af því að fella frv. Ég hef gert grein fyrir minni skoðun, ég er ákveðinn í að greiða atkv. með frv. af ástæðum, sem ég hef nú greint, þó að mikil vandkvæði séu á skipakaupunum sjálfum. Hitt er svo annað mál, að það er nokkur uggur í mér út af því, hvernig skipið muni verða notað, en það snertir öryggishlið málsins.