01.03.1949
Neðri deild: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í C-deild Alþingistíðinda. (4070)
140. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Gylfi Þ. Gíslason:
Mér þykir dálítið kyndugt að þurfa að standa hér upp til að koma hv. 2. flm. þessa máls í skilning um eðli þess og afleiðingar, ef það næði fram að ganga. Mér skilst, að hv. 1. flm. hafi skilið mál mitt, er ég sýndi fram á, að þetta frv. hefði aukið og nýtt misrétti í för með sér. Hins vegar heyrði ég það greinilega á hv. 2. flm., að hann hefur ekkert skilið af því, sem ég sagði, og undrar mig, að jafnafburðaglöggur og þingvanur maður skuli vera svo skilningssljór í þessu máli. — Skemmtanaskattur hefur verið innheimtur í 20 ár til styrktar tilteknum menningarmálum, en hann hefur ekki verið innheimtur og ekki verið greiddur af þeim aðilum, sem verja tekjuafgangi af rekstri sínum til annarra menningarmála. M. ö. o., allir skemmtistaðir, sem verja tekjuafgangi af rekstri sínum til menningarmála, njóta undanþágu frá greiðslu skemmtanaskatts, hvort sem um er að ræða bíó, samkomuhús eða danshús. Þannig er öllum þeim fyrirtækjum, sem verja tekjuafgangi sínum til menningarmála, gert jafnhátt undir höfði. Í þessu frv. er aftur á móti lagt til, að kvikmyndahús skuli hætta að njóta undanþágu frá greiðslu skemmtanaskatts, þó að tekjuafgangur þeirra renni hér eftir sem hingað til, til menningarmála. Það er m. ö. o. samkv. þessu frv. gerður greinarmunur á kvikmyndahúsum og öllum öðrum skemmtistöðum, sem hingað til hafa notið þeirra hlunninda að greiða ekki skemmtanaskatt vegna þess að tekjuafgangur þeirra rennur til menningarmála. Þessi fyrirtæki eiga að halda áfram að njóta þessara hlunninda að kvikmyndahúsunum undanskildum, þó að kvikmyndahúsin láti tekjuafgang sinn renna til menningarmála alveg eins og verið hefur og alveg eins og þeir skemmtistaðir, sem eiga að njóta hlunnindanna áfram. Ef hér er ekki verið að innleiða misrétti, þá veit ég ekki, hvað það orð þýðir. Og ef jafnafburðaglöggur maður og hv. 1. þm. Árn. skilur það ekki, þá játa ég, að ég skil ekki, hvers konar blindu hefur slegið á augu hans. Það hefði verið sök sér, ef hv. flm. þessa frv. hefðu lagt til, að allar undanþágur frá greiðslu skemmtanaskatts væru afnumdar. Í því hefði þó verið samræmi, og eitt hefði verið látið yfir alla ganga. En það leggja þeir ekki til, heldur vilja þeir innleiða það misrétti að taka kvikmyndahúsin út úr, jafnvel þó að tekjuafgangi þeirra sé varið í því skyni, sem lög gera ráð fyrir, að valdi undanþágunni. Skýrar tel ég mig ekki geta talað.
Ég er ekkert að seilast í fé þjóðleikhússins og félagsheimilasjóðs, það er langt frá því. Ég er aðeins að átelja ásælni í fé, sem rennur til annarrar menningarstarfsemi. Ég er andvígur slíkri ásælni og því misrétti, sem þetta frv. leggur til, og ég mun greiða atkvæði gegn því.