04.03.1949
Neðri deild: 75. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í C-deild Alþingistíðinda. (4092)
152. mál, ullarmat
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Mál þetta er flutt af landbn. fyrir tilmæli atvmrn., og eru breyt. þær, sem það gerir ráð fyrir frá gildandi ullarmati, skýrðar nokkuð í greinargerð, og liggja þær því ljóst fyrir þeim, sem lesa hana. Ég skal þó stikla aðeins á aðalbreytingunum með nokkrum orðum.
Það er gert ráð fyrir samkvæmt þessu frv., að hafið verði eins konar gæðamat á íslenzkri ull, en hingað til hefur matið meira verið hreinleikamat, og ullin hefur verið þvegin, áður en hún hefur verið flokkuð. Nú á að taka upp mat á þessari vöru, áður en hún er þvegin, meta eftir gæðum og þvo hvern flokk út af fyrir sig, í stað þess að fram til þessa hefur orðið að þvo alla ullina saman, vegna þess að örðugt hefur verið að koma því við að þvo ullina í mörgum flokkum á heimilunum, og matið hefur því ekki orðið eins nákvæmt og ella. Til skamms tíma hefur ekki verið um annað að ræða, en þvo ullina heima. En nú eru aðstæðurnar að breytast, bæði vantar mannafla til að þvo ullina á hverju heimili, og í öðru lagi koma ullarþvottastöðvar nú til greina. Ullarþvottastöðin á Akureyri mun t. d. verða tilbúin næsta vor, og má gera ráð fyrir, að áður en langt um líður sæki í það horf, að öll ull verði vélþvegin á nokkrum stöðum í landinu, og er þá auðvelt að koma við gæðamati. Þá er hægt að fella niður yfirullarmatsmenn, en mikið starf verður lagt á herðar formanni ullarmatsnefndar. Laun hans hækka því nokkuð, en heildarsparnað í launum hefur þetta frv. í för með sér, þar eð yfirullarmatsmenn falla úr sögunni.
Þetta eru nú aðalbreyt. frá gildandi ullarmati, sem felast í þessu frv., og hefur verið lögð áherzla á þær af hálfu þeirra, sem hafa haft með eftirlit og framkvæmd þessara mála að gera. En þar sem málið er flutt af landbn., óska ég ekki eftir, að því verði sérstaklega vísað til nefndar, en ég beini því til landbn., að hún athugi málið enn á milli umræðna, á sama hátt og hún hefði gert, ef því hefði verið vísað til hennar formlega.