21.03.1949
Neðri deild: 84. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (4102)
162. mál, stóríbúðaskattur
Flm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 1. þm. Rang. og hv. þm. V-Sk. borið fram frv. á þskj. 457 um stóríbúðaskatt. Samkvæmt frv. skal greiða slíkan skatt af íbúðum, sem fara fram úr ákveðinni stærð. Ríkið á að fá þennan skatt og verja honum til lánveitinga, að hálfu til byggingarsamvinnufélaga og að hálfu til byggingar verkamannabústaða. Í 2. gr. er ákveðið, hvernig skatturinn skuli reiknaður, og sé ég ekki ástæðu til þess að fara að lýsa því, það liggur glöggt fyrir. Þó að frv. heiti frv. um stóríbúðaskatt, er tilgangur þess engu síður sá að reyna að fá fram aukið framboð á leiguhúsnæði. Það er kunnugra, en frá þurfi að segja, að húsnæðisvandræði eru mikil, einkum í kaupstöðunum. Leiga hefur einnig hækkað mjög, þrátt fyrir aðhald húsaleigulaganna. Ef þessi skattur yrði lögleiddur, mundu ýmsir kjósa það fremur að bjóða húsnæði fram til leigu heldur en að greiða skattinn. Þetta er engu síður tilgangur okkar, en að ná inn skattinum. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara um þetta fleiri orðum. Málið liggur svo ljóst fyrir, að menn geta auðveldlega áttað sig á því. Frv. er að öðrum þræði skattamál, en allshn. hefur haft frv. varðandi húsnæðismálin til athugunar, og tel ég, að þetta frv. eigi líka að fá athugun í þeirri n. Ég legg því til, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.