01.02.1949
Efri deild: 52. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (411)

2. mál, síldarbræðsluskip

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég hef ekki miklu að svara hv. þm. Barð., því að hans ræða snýr ekki að mér nema að nokkru leyti. Ég vil aðeins taka það fram, að ég skildi það svo, þegar hann hélt sína ræðu, að hann hefði verið að telja, að fjárhagsráð, og viðskiptanefnd hefði farið út fyrir sitt verksvið, þegar það leyfði innflutning á skipinu, og þann sama skilning mætti leggja í orð hans í nál., þó að hann segi það ekki beinlínis. Hann setur það þar að vísu fram í spurningarformi, því að hann segir: „Hafi hins vegar fjárhagsráð.“ En þar lætur hann liggja orð að því, að þetta muni kannske háfa verið gert. og ég gat ekki betur skilið á ræðu hans í gær, en að hann væri að halda þessu fram. En eins og ég sagði, þá þurfti að fá innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir skipinu eins og öðrum innflutningi, hvort sem það var flutt inn sem far eða sem verksmiðja. En ef það var flutt inn sem skip, þá þurfti að nema úr gildi þetta ákvæði skipaskoðunarl., sem hindraði, að skipið væri flutt inn, af því að það var eldra en 12 ára. Það var eðlilegt, að þau leyfi hefðu verið veitt samtímis, því að annað var ónýtt án hins. Hvað viðvíkur því, að ég hafi gleymt því, sem gerðist í marz á fundi með fjárhagsráði, þá skal ég ekkert fullyrða um það, en hitt er annað, að mér var ekki kunnugt um það, þegar brbl. voru samin og leyfi var gefið fyrir innflutningi skipsins samkvæmt þeim brbl., hvort fjárhagsráð væri þá búið að veita sín gjaldeyris- og innflutningsleyfi eða ekki. Náttúrlega hefði ég getað aflað mér þeirra upplýsinga, en það var þá ekki sérstaklega gert, og þess vegna var ástæða til þess að setja það líka í leyfið, sem gefið var fyrir innflutningi skipsins, og þess vegna var það gert. Um meðferð málsins að öðru leyti skal ég ekki taka frekar fram, af því að búið er að því áður. En um kaupin á skipinu og alla þá miklu annmarka, sem hv. þm. Barð. telur á því vera, vil ég vísa til þeirra, sem þar áttu hlut að máli, þessara tveggja fagmanna; sem hafa þekkingu á þessum hlutum. Vil ég a.m.k. leggja hana á borð við þekkingu hv. þm. Barð., þar sem er annars vegar Jón Gunnarsson verkfræðingur, þó að hann sé ekki skipaverkfræðingur, en hefur haft með verksmiðjurekstur að gera og var fenginn til að segja til um tilhögun þeirra véla, sem settar voru í skipið til að nóta það sem verksmiðjuskip, og svo hins vegar Ólafur Sigurðsson, sem er skipaverkfræðingur og keypti sjálft skipið og aflaði þess. Hv. þm. Barð. sagði í sinni ræðu, að þessir menn væru báðir prýðismenn og mikið væri upp úr því leggjandi, hvað þeir segðu. Þegar þeir hafa nú báðir gefið skipinu sín beztu meðmæli og að það muni geta komið að flestum notum sem verksmiðjuskip, sem Alþ. var búið að heimila að kaupa og ákveðið var að hefja reksturinn með, þá sá ég ekki neina ástæðu til að ganga á móti þessu áliti sérfræðinganna og setja fótinn fyrir, að skipíð yrði keypt. Hins vegar liggur það í hlutarins eðli, að skipið verður að vera flutt inn sem skip, en ekki sem verksmiðja, því að það verður, samkvæmt eðli málsins, að vera mögulegt að flytja það á milli hafna innanlands, og þó að það hafi átt að vera fyrst og fremst sem verksmiðja, þá átti hún ekki að vera staðbundin. Eins og orðað var í leyfinu: „notað til síldarvinnslu í höfnum inni,“ og það er aðaltilgangurinn. Það á að geta farið hafna á milli, en ekki vera stöðugt hér í Reykjavík eða Hvalfirði, heldur fara til Norður- eða Austurlands, eftir því sem hentar hverju sinni. Til þess þarf það að vera sjófært og hafa um það öll skilríki.

Hvað viðvíkur, að skipið ætti að fara til Noregs og hefja þar síldarvinnslu, þá er mér ekki kunnugt um það, en ef til þess kemur, þá verður að leita álits skoðunarmanna ríkisins um það, hvort það muni til þess fært. Þó geri ég ekki ráð fyrir því, að það verði látið sigla til erlendra hafna, og að minnsta kosti alls ekki án lögbeðinna skilríkja.

Þegar það var fyrst hér til umr. að fá hingað síldarvinnsluskip, þá var það skoðun mín, að bezt væri að fá nýtt og fullkomið skip, til þess að öll vinnslan yrði á sem hagkvæmastan og ökonomiskastan hátt, en hins vegar gat ég látið mér skiljast að svo fullkomið skip yrði svo dýrt, að það yrði óviðráðanlegt á því verði og eins og fjárhagurinn var. Annaðhvort var því að kaupa þetta gamla skip eða ekkert, og það þótti of viðurhlutamikið, ef ekkert hefði verið að gert. því hefur verið lýst af hæstv. fjmrh., hve erfiðlega gekk að koma síldinni til Siglufjarðar héðan að sunnan í fyrra vetur og hve geysilegur kostnaður við þá flutninga var. Og þótti því ekki ráðlegt að láta undir höfuð leggjast að vera við því búinn að taka á móti síldinni, ef hún kæmi aftur, og gera ráðstafanir í því sambandi. Þá geta orðið full not af skipinu, þó að verksmiðjubyggingar skorti. — Ég tel, svo ekki ástæðu til þess að fara út í frekari umr. um þetta mál.

Ég mun ganga ríkt eftir því, að þeir trúnaðarmenn ríkisins, sem eiga um þetta að fjalla, hafi ríkt eftirlit og veiti ekki skipinu ferðaleyfi, nema uppfylltar séu þær kröfur, .sem gerðar eru, og vænti ég þess, að það uppfylli þær kröfur. En ég vil leggja á það höfuðáherzlu að afgreiða málið þannig, að skipið verði ekki staðbundið, heldur hafa það í förum sem far. Að endingu vil ég svo endurnýja ósk mína, sem ég bar fram áðan að frv. verði samþ. og tekið til 3. umr.