17.05.1949
Neðri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í C-deild Alþingistíðinda. (4188)
210. mál, símaframkvæmdir
Flm. (Halldór Ásgrímsson) :
Herra forseti. Þetta frv. er stutt og einfalt í formi. Hér er farið fram á, að hæstv. ríkisstj. sé veitt heimild til 2 millj. kr. lántöku til þess að flýta fyrir símalagningu í sveitum. Ég þarf ekki að tala langt mál þessu viðvíkjandi, því að öllum hv. þm. er það svo kunnugt, hversu áríðandi það er fyrir sveitir landsins, að sveitasímar komi á sem flest býli og það sem fyrst. Öllum er það og vitanlegt, að fjárveitingin, sem ákveðin er á fjárl. til þessara framkvæmda, hrekkur skammt. Á fjárl. yfirstandandi árs eru áætlaðar 800 þús. kr. til þessa., og er augljóst, að það hrekkur skammt, þegar skipta á því fé á 20–30 héruð. Það er nú upplýst, að þótt þörfin sé alls staðar mikil, þá er hún mjög misjöfn, þannig að sums staðar hafa aðeins 20% bæja fengið síma, en annars staðar er þessi hlutfallstala nokkru hærri. Það er og vitað, að eitt af því allra nauðsynlegasta til þess að byggð haldist í sveitum, er, að bændur fái síma. Það er nú liðinn sá tími, að bóndinn geti lagt á gæðing sinn og þeyst á honum milli bæja. Það er nú liðinn sá tími fyrir einyrkjann, og hætt er við, að margir bæir leggist í auðn, ef ekki kemur sími. Það, sem við förum fram á, er, að leitað sé fyrir hjá sveitarfélögunum, hvar þörfin sé mest, og síðan tekið lán til framkvæmda. Ég gæti hugsað mér svona 10 ára lán, og býst ég þá við, að tekjur af símanum gætu staðið undir því að borga vexti og afborganir. Að sjálfsögðu er svo gert ráð fyrir, að Alþingi veiti árlega á fjárlögum nokkra upphæð til þessara framkvæmda, og gangi þá það fé til þeirra sveitarfélaga, sem ekki telja sig geta lagt út fé. Það er síður en svo ætlunin, að þeir elnir, sem hafa fjármagn, eigi með þessu að fá síma, heldur miklu fleiri. Það fé, sem fæst með lántökunni, er ætlað til að leggja síma um þær sveitir, er út geta lagt fé, og til að kaupa efni, en það fé, sem veitt er á, fjárlögum, fari til þeirra, sem geta ekki sjálfir lagt út fé, en samt þurfa á síma að halda.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa þessa framsögu lengri og vænti þess, að málinu verði vísað til fjhn. að umr. lokinni.