02.11.1948
Efri deild: 7. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í C-deild Alþingistíðinda. (4193)
32. mál, vegalagabreyting
Flm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum um þetta frv. Það er gamalkunnugt hér í d. — Breyt. þær, sem hér er farið fram á, eru í fyrsta lagi það, að lagt er til, að akvegurinn, sem nú endar við Hábæ í Þykkvabæ, sé framlengdur að Unhól í Þykkvabæ. Það vita allir, sem til þekkja, að þarna er um marga bæi að ræða, sem daglega þurfa að senda frá sér mjólk, og er lagt til, að vegurinn verði lengdur um 3–4 km. Eins og nú hagar til, verða bændur frá 12–14 bæjum daglega að fara með mjólkina að Hábæ.
B-liður er nánast leiðrétting. Það er talað um Reykholtsdalsveg í l., en sá vegur er hvergi nefndur nema á þessum eina stað og enginn vegur til, sem sérstaklega heitir því nafni, heldur mun þar vera átt við part af Borgarfjarðarbraut. Virðist þess vegna vera rétt að kalla veginn sínu rétta heiti, og legg ég því til, að þessu sé breytt.
C-liður er um, að Hvítársíðuvegurinn verði framlengdur inn Hvítársíðu á enda, eða að innsta bæ. Það er gert með tvennt fyrir augum: Annars vegar, að nokkrir bæir í sveitinni, sem daglega þurfa að senda frá sér mjólk, komist í almennilegt vegasamband, og hins vegar að tengja veginn við fjallveginn, sem liggur upp frá Fljótstungu og mundi tengjast við þjóðveginn með þessu móti.
Þá er d-liður. Nú er ætlazt til, að vegurinn liggi yfir Hvítá á brú undan Bjarnastöðum og þar á sýsluveginn. Ég legg til, að vegurinn verði lagður áfram alla leið að Borgarfjarðarbraut hjá Reykholti.
E-liður er nánast leiðrétting á prentvillu. Þar er talað um Reykjarfjarðarveg, en er betra að orða það „að Kaldrananesi.“
F-liður er um framlengingu á veginum, sem nú er látinn enda í Árnesi. Í Ingólfsfirði er að koma upp þorp í sambandi við síldarverksmiðju, sem þar er rekin. Mér finnst ekki ná nokkurri átt að láta veginn enda skammt fyrir utan þorpið, og ég legg því til, að hann verði framlengdur inn í þorpið.
G-liður gerir ráð fyrir framlengingu vegarins frá Gemlufalli niður að ferjustaðnum við sjóinn. Hann er ekki í þjóðvegatölu, en þó mun ríkissjóður búinn að kosta hann, þó að lög mæli ekki svo fyrir.
H-liður er um að framlengja veginn vestur Barðastrandarsýslu út Tálknafjörð að Stóra-Laugardal.
Svo er i-liður. Það er enn óvíst, hvar brýr koma Yfir Héraðsvötn í fram-Skagafirði. Ýmsir vilja byggja brúna þar, sem árnar koma saman, og þá mundi þjóðvegurinn í Skagafirði ekki ná lengra en þangað. Meðan það er óákveðið, hvar brúarstæðið skuli vera, vil ég láta setja í lögin, að vegurinn skuli liggja að Goðdölum. Með því er engu slegið föstu um brúarstæðið, en því aðeins slegið föstu, að vegurinn skuli liggja í Goðdali. Á síðasta þingi kom ég með sams konar till. um Ás í Vatnsdal. Frá þeirri till. hef ég nú fallið, því að nú er búið að ákveða brúarstæðið og tillagan því orðin óþörf.
J-liðurinn er um það að framlengja veginn, sem nú endar að Ríp, að Eyhildarholti, en þar eru lögferjur bæði austur og vestur yfir Héraðsvötn. Með því ynnist það, að framnesið kæmist í tengsl við þjóðveginn og nesið yrði með ferjunum tengt við vegi héraðsins bæði að austan og vestan og þar með við akvegasamband landsins.
K-liðurinn gerir ráð fyrir að lengja veginn fram Bárðardalinn að Bjarnastöðum.
L-liður gerir ráð fyrir nýjum vegi, Jökuldalsvegi eystri. Vegurinn liggur núna niður Jökuldal og niður að Jökuldalsárbrú utan við Fossvelli. Síðan þessi þjóðvegur var lagður, hefur verið gerð brú undan Hjarðarhaga. Með því að fara yfir hana og leggja veginn út dalinn þeim megin, þá fæst styttri vegur og snjóléttari og þá takast líka af krókar og beygjur upp að Heiðarenda. Ef þessi leið yrði gerð að þjóðvegi, mundu allir bílar, sem austur fara, fara hana, þar sem hún er styttri, og með því sparast benzín og viðhald bíla.
M-liður er nánast leiðrétting, og sama er að segja um n-liðinn.
Það hafa komið fram brtt. við þetta frv., en ég mun ekki ræða þær nú. Þá hefur í Nd. komið fram frv. um breyt. á vegalögum, og óska ég þess, að samgmn. þessarar d. athugi þær breyt. í samvinnu við samgmn. Nd., svo að breyt. geti orðið settar inn í frv. allar í einu, en ekki sitt á hvað, svo að málið þvælist þannig milli deilda, eins og þegar þetta mál var hér síðast til umr. og afgreiðsla málsins fór í handaskolum í lokin vegna lélegs samstarfs nefndanna.