04.11.1948
Efri deild: 8. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (4199)
45. mál, skipaafgreiðsla í Vesmannaeyjum
Flm. (Brynjólfur Bjarnason):
Herra forseti: Út af því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, vil ég taka þetta fram: Það er rétt, að þeir menn, sem reka skipaafgreiðslu eða aðra slíka starfsemi, eru að vísu skattlagðir, en ekki svo hátt, að allar tekjur þeirra af slíkri starfsemi fari í skatta, og er því hér vissulega um nýjan tekjustofn að ræða, enda hefur mikill meiri hluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja óskað þess, að frv. þetta væri flutt. Það var samþykkt árið 1945 með 5 atkv. gegn 2, og stóðu að því fulltrúar allra flokka, en á síðasta þingi flutti ég frv. skv. ósk meiri hlutans, og hv. allshn. ræddi málið við bæjarstjóra og fékk að vita vilja bæjarstjórnar í þessu efni. Ég flyt nú frv. aftur, því að enn var það ósk meiri hl. bæjarstjórnar, að frv. yrði flutt.