25.11.1948
Efri deild: 20. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í C-deild Alþingistíðinda. (4208)
78. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Gísli Jónsson:
Ég vil á þessu stigi málsins segja um það nokkur orð. Það er ljóst, að þótt þetta frv. yrði að lögum, mundi það ekki bæta nema úr einu sérstöku atriði í sambandi við skattamálin yfirleitt. Það yrði að vísu bót á þessu eina sviði, en málið í heild væri að sjálfsögðu eins óleyst, þó að þetta yrði samþ.
Frsm. gat þess, að einstaklingsreksturinn yrði að víkja vegna þessa ákvæðis skattal. Það er að vísu rétt, svo langt sem það nær, að einstaklingsreksturinn er að víkja til hliðar í þjóðlífinu, en ekki einungis vegna þessa ákvæðis, heldur af allt öðrum orsökum, og þar í liggur meinið. Það hefur verið hafinn slíkur áróður gegn einstaklingsframtakinu í landinu á hvaða sviði sem er, í skattalöggjöfinni, útsvarslöggjöfinni og víðar, að þessum rekstri er vikið til hliðar. Ríkisvaldið hefur sjálft gengið meira og meira inn á þá braut að hrifsa úr höndum einstaklinga fyrirtæki, sem höfðu verið vel byggð upp og vel rekin, miklu betur en eftir að ríkisvaldið tók við þeim, en á þessari braut halda þeir áfram lengra og lengra, og vil ég í því sambandi leyfa mér að benda á eitt fyrirtæki, sem er Landssmiðjan. Það er nú búið að fá reynslu á þetta fyrirtæki gegnum fjöldamörg ár, og eftir þessi mörgu ár er útkoman sú, að Landssmiðjan skuldar ríkissjóði milljónir í sköttum og stórkostlegar fjárhæðir, sem ríkissjóður hefur orðið að greiða beint til starfsmannanna, meðan við hlið hennar hafa risið upp sams konar fyrirtæki, sem selja vinnu sína og vörur með nákvæmlega sama verði, en eru hæstu skattgreiðendur í landinu til ríkis og bæjar. Á það hefur verið margbent, hvað þetta er óheppilegt, og að farið hefur verið inn á þessa braut, stafar ekki af því, að einstaklingsframtakinu hafi verið vikið til hliðar, heldur af því, að það hefur verið skoðun meiri hluta þjóðarinnar, að bezt sé að láta ríkið reka slík fyrirtæki, þrátt fyrir það að reynslan hefur sýnt það gagnstæða. — Ég skal líka benda á sérleyfisferðirnar. Það er upplýst nú, að á sérleyfisleiðinni milli Rvíkur og Hafnarfjarðar hefur verið 100 þús. kr. halli, eftir að ríkisstofnanir tóku þetta í sína þjónustu, þó að stórkostlega hafi verið hækkuð gjöldin til þeirra, sem þurfa að nota vagnana. Hefur ríkið orðið að standa undir þessu með beinum útgjöldum úr ríkissjóði, og er svo komið nú, að þessi starfræksla skuldar póstsjóði á þriðju milljón kr. í dag. Nákvæmlega sama er að segja um sérleyfisleiðina milli Akraness og Akureyrar. Áður var þetta rekið með miklum dugnaði af þeim mönnum, sem höfðu með það að gera, og þá greiddu þeir aðilar stórar upphæðir í bæjarsjóð. En nú hefur ríkið tekið að sér starfræksluna með þeim árangri, að fargjöldin eru hærri, afgreiðslan lakari og hallinn mikill fyrir ríkissjóð. Þetta er ekki raunverulega vegna þess, að þetta ákvæði, sem nú á að nema burt úr l., hafi orðið þess valdandi, heldur stafar það af allt öðrum ástæðum, sem sé þeim, að búið er að hefja þann áróður í þessu landi á einstaklingsframtakið, að því er vart orðið vært í landinu.
Ég gæti talið upp fleiri dæmi, en vil ekki tefja tíma þingsins með því. Ég tel, eins og hv. flm., að þetta sé stórkostlegt böl í okkar þjóðlífi og annaðhvort verði að slaka aftur til á klónni og viðurkenna ágæti einstaklingsrekstrarins eða öll fyrirtæki fari inn á ríkisrekstur og skapað verði hér ákveðið rússneskt fyrirkomulag á öllum rekstri.
Ég vil benda flm. á, að jafnvel þótt þessi breyt. yrði gerð á skattalöggjöfinni, er það síður en svo, að einstaklingsframtakið geti yfirleitt lifað og þróazt, nema ýmsum öðrum ákvæðum skattal. yrði einnig breytt. Ég vil í því sambandi benda á mismuninn á því, sem einstaklingsframtakið á við að búa í verzlun og viðskiptum og kaupfélögin. Ég þekki mýmörg dæmi þess, þar sem á sama stað annars vegar er verzlun kaupfélags og hins vegar frjáls verzlun einstaklinga. Þar er sveitarbyrðinni, útsvörunum, allri dembt á hina frjálsu verzlun einstaklinganna, þar sem kaupfélögin aftur á móti eru sums staðar ekki látin bera nema sáralítið brot af sveitargjöldunum. Þannig er frjáls verzlun skipulega hrakin burt frá ýmsum stöðum. Ég get bent á dæmi, þar sem frjáls verzlun stóð við hliðina á kaupfélagi í 10 ár. Þeir höfðu öll árin nokkurn veginn sömu vörusölu og vörutolla og nákvæmlega sömu verzlunarálagningu. Á annað fyrirtækið, þ. e. hina frjálsu verzlun, voru lagðar 30 þús. kr., en á kaupfélagið 3 þús. kr., sem varð til þess, að kaupfélagið gat á hverju ári tekið milli 20 og 30 þús. kr. og útbýtt því til viðskiptavina sinna sem afslætti af vörum, sem hitt fyrirtækið gat ekki gert, því að þetta var tekið af því handa þessum sömu viðskiptavinum til þess að standa undir þörfum sveitarinnar. — Af þessu sést, að hafnar eru skipulagðar árásir á einstaklingsframtakið í landinu, sem verða ekki stöðvaðar með þessu eina ákvæði. Ég segi þetta ekki til þess, að þetta fari ekki í gegn, því að óneitanlega væri þó nokkur bót að þessari breyt. Ég mun að sjálfsögðu fylgja þessu frv. til n., en vildi hafa bent á þetta þegar við þessa umr., að þörf er á að gera ýmislegt fleira en þetta hér til þess að tryggja einstaklingsframtakinu í landinu þann sess, sem það ekki einasta á, heldur líka þarf að ná, til þess að bjarga aftur ýmsum verðmætum hjá þjóðinni.