17.02.1949
Efri deild: 61. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í C-deild Alþingistíðinda. (4228)
135. mál, iðnskóli í sveit
Flm. (Hannibal Valdimarsson) :
Herra forseti. Þetta mál er gamalkunnugt hér í d., þar sem það hefur verið flutt nokkrum sinnum áður. Þarf þess vegna ekki ýtarlega framsögu og skal ég vera stuttorður.
Efni frv. er það í skemmstu máli, að stofna skuli skóla í húsasmíði, þetta skuli vera heimavistarskóli og honum valinn staður í sveit, sem vel henti hlutverki hans. Um stærð skólans er það tekið fram, að hann skuli rúma allt að 30 nemendur. — Að einu leyti er frv. sérstaklega ólíkt öðrum frv. um skóla. Það er sem sé ætlazt til, að skóli þessi standi að verulegu leyti undir sér sjálfur. Ætlazt er til, að rekstrinum verði hagað þannig, að á vetrum fari fram öðrum þræði kennsla í bóklegum greinum, þeim sem iðnaðarmönnum er mest nauðsyn að vera vel að sér í, en jafnhliða fari fram kennsla í verkstæðum skólans og þar framleitt ýmislegt til húsa, en á sumrin starfi skólastjóri og kennarar skólans að því að kenna nemendum skólans ýmiss konar byggingar, og fari þær byggingar aðallega fram í sveitum og kauptúnum með minna en 300 íbúa. — Samkvæmt 3. gr. frv. eiga rétt til skólavistar þeir nemendur héraðsskóla og gagnfræðaskóla, sem lokið hafa miðskólaprófi í verknámsdeild með 1. einkunn, og sömuleiðis þeir, sem hafa eins mikla kunnáttu í þessum efnum og þeir, er stundað hafa slíkt nám.
Önnur ástæðan til þess, að frv. þetta er fram borið, er sú, að geysimikil þörf er fyrir stórfelldar byggingar bæði íbúðarhúsa og peningshúsa í sveitum, og að því er íbúðarhúsabyggingar snertir, gildir sama um flest kauptún landsins, að þörf stórfelldrar endurbyggingar er knýjandi á eins skömmum tíma og hægt væri að koma henni í verk. Önnur meginorsök frv. er sú, að í sveitum og smærri kauptúnum eru lítt fáanlegir faglærðir menn til þess að standa fyrir slíkum byggingum og hér um ræðir, og er skólanum ætlað að bæta úr þessu hvoru tveggja að svo miklu leyti sem skóli, sem er ekki stærri en þetta, gæti annað því. Ég held þess vegna, að þegar á það er litið annars vegar, hvað þörfin, sem frv. er ætlað að leysa, er brýn, og svo hins vegar, að hér er um skóla að ræða, sem gæti að öllu eða verulegu leyti staðið undir rekstri sínum fjárhagslega, sé ekki áhorfsmál fyrir Alþingi að samþ. þetta frv.
Vil ég svo mælast til, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og menntmn.