17.02.1949
Efri deild: 61. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í C-deild Alþingistíðinda. (4231)

135. mál, iðnskóli í sveit

Flm. (Hannibal Valdimarsson) :

Aðalröksemd mín fyrir því, að þetta heyri undir menntmn., er sú, að hér er um að ræða stofnun, sem ætti beinlínis að falla inn í skólakerfi landsins, og gegnir nokkuð öðru máli um iðnaðarlöggjöfina, sem snertir mörg önnur atriði en beint hina skólalegu hlið iðnmálanna, og get ég því ekki betur séð en að þetta frv. hér eigi að fara til menntmn. Fari samt sem áður svo, að till. mín um menntmn. verði felld, vil ég láta þá ósk í ljós, að hv. iðnn. taki vel á þessu máli og afgr. það fljótt frá n., því að ég hygg, að það hafi einu sinni eða tvisvar dagað uppi í iðnn.