07.04.1949
Efri deild: 83. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í C-deild Alþingistíðinda. (4236)
170. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur
Flm. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Ég þarf ekki að flytja langa framsöguræðu um þetta mál, þar sem því fylgir svo ýtarleg grg., að framsöguræða mín mundi verða að miklu leyti endurtekning á grg. Þess vegna get ég sparað d. tíma með því að vísa til grg. En í stuttu máli vildi ég um þetta mál segja það, að eins og það ber með sér, er það í tveim köflum. Fyrri kaflinn er um eftirlit með verðlagi. Seinni kaflinn er um viðurlög við því að brjóta verðlagsákvæði. Breyt., sem gerðar eru á núverandi löggjöf í þessu efni, eru þær í fyrsta lagi, að verðlagsstjóri er skipaður með þeim hætti, sem skýrt er frá í 2. gr., kjörinn af fulltrúum neytenda í stað þess, að nú er hann skipaður af ríkisstj. Þess vegna á að vera trygging fyrir, að þeir, sem mest eiga undir því, að verðlag í landinu sé heilbrigt, sjái þannig um verðlagseftirlitið fyrir milligöngu þessara manna, sem þeir sjálfir geta til þess kjörið. Enn fremur er ætlazt til þess, að sömu aðilar ráði því í aðalatriðunum, hverjir eru starfsmenn verðlagsstjórnar víðs vegar um landið og til verðlagseftirlits í bæjunum. Að öðru leyti eru ákvæðin svipuð því, sem verið hefur. Verðlagsstjóra er skylt að gera ýtarlegar rökstuddar till. til fjárhagsráðs um verðlag í landinu. Þess vegna hlýtur hans áhrifa að gæta í verulegum atriðum um verðlagið sjálft, ekki síður en verðlagseftirlitsins.
Í annan stað er svo fyrir mælt í II. kafla þessara l., að fyrirkomulag dómsvaldsins í þessum málum verði svipað og nú er í sjódómi, að það séu meðdómendur, sem séu tilnefndir af fulltrúum neytenda fyrst og fremst með hlutaðeigandi héraðsdómara í þessum málum. Er það gert til þess, að neytendur eigi þar einnig fulltrúa til að fylgjast með því, að málum sé lokið á viðunandi hátt. Meðferð þessara mála er að því leyti frábrugðin meðferð almennra sakamála, eins og hún er nú, að dómstóllinn verður í þessum málum fyrir opnum dyrum, þannig að menn geta hlýtt á og fylgzt með meðferð þessara mála, nema dómur ákveði annað.
Enn fremur er svo fyrir mælt, að það skuli prenta dóma verðlagsdóms.
Þá er svo ákveðið, að refsingar fyrir verðlagsbrot verði verulega þyngdar frá því, sem nú gildir. Geta refsingar orðið allt að 4 ára fangelsi, ef brot eru ítrekuð eða stórkostleg.
Það hefur sýnt sig, að svarti markaðurinn hefur orðið þeim lýðræðisþjóðum, sem við dýrtíðina hafa þurft að glíma, einn hinn mesti þrándur í götu, og hafa þær margar hnotið á þeim hindrunum. En ég er þeirrar skoðunar, að þetta sé eitt þeirra mála, sem þyrfti að afgreiða til þess að koma hér á heilbrigðu verðlagi, þó að það sé að vísu tekið fram í þessari grg., að löggjöf eins og sú, sem hér er ætlazt til, að sé sett, geti aldrei orðið annað en bakvörn í verðlagsmálunum. Fyrsta skilyrðið er heilbrigð verzlun og frjálsræði fólksins til þess að velja og hafna og samkeppni innan þeirra marka, sem orðið geta í þessu landi. Þetta fyrsta skilyrði er greinilega tekið fram í grg. En þó að því fyrirkomulagi verði við komið, þarf strangt eftirlit, meðan slíkar hömlur eru, sem nú er, eða nokkrar leifar þeirra.
Ég held satt að segja, að það sé ekki rétt að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég vil ekki gefa tilefni til langra umr. á þessu stigi. En ég ætla samt, að hvenær sem dýrtíðarmálin verða tekin fyrir í þessu landi, muni svo fara, hér ekki síður en annars staðar, eins og í Frakklandi, þar sem menn hafa neyðzt til að þyngja refsingarnar svo mjög fyrir verðlagsbrot, að við kjósum hélzt ekki að láta þau orð koma yfir okkar varir, um leið og við nefnum refsingar, vegna þess að það hefur dregizt of lengi að taka á þeim. En þó að við höfum ekki slíkar refsingar í okkar löggjöf, þá er það lærdómur, sem við ættum að geta af þeirri reynslu dregið, — að hvenær sem við förum að gera okkar ráðstafanir í dýrtíðarmálunum, þá verður það fyrst og fremst, að okkar áliti, sem flytjum þetta frv., gegnum heilbrigða verzlun og verðlagsráðstafanir, þar sem fólkið fær sjálft að líta eftir verðlaginu og fylgjast með því gegnum fulltrúa sína. Með því er tortryggni útrýmt, sem gert hefur vart við sig víða erlendis með þeim afleiðingum, sem ég gat um og gætu komið einnig hér, þó að í annarri mynd væri, en allir munu sammála um að gera það, sem unnt er, til að forðast slíkt.
Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og til allshn.