28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í C-deild Alþingistíðinda. (4240)
197. mál, laun starfsmanna ríkisins
Frsm. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Frv. þetta er flutt eftir beiðni hæstv. fjmrh., en nm. hafa óbundnar hendur um atkvgr. í málinu. Sú breyt., sem hér um ræðir, að fjmrh. úrskurði, hvaða aukastörf sé rétt að telja til aðalstarfa og hvernig launa beri þau sérstaklega, er fram komin fyrir till. frá svokallaðri sparnaðarnefnd, sem leggur til, að sú n., sem nú fjallar um slíka úrskurði og skipuð er einum manni frá ríkisstj., öðrum frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og hinum þriðja frá hæstarétti, verði lögð niður og þetta vald fengið í hendur fjmrh., þar sem óþarft sé að hafa sérstaka n. til úrskurðar í slíkum málum. Fjmrh. flytur nú þetta frv. í samræmi við till. sparnaðarnefndar, og virðist bæði rétt og eðlilegt, að ekki sé sérstök n., sem fjalli um slíkt mál sem þetta, heldur sýnist eðlilegast, að það sé fengið í hendur fjmrh.