28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í C-deild Alþingistíðinda. (4242)
197. mál, laun starfsmanna ríkisins
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil fyrst taka fram, að ég er sammála frsm. og ráðh. um það, að hér þarf að verða breyting á. — Þegar greidd voru atkvæði í þessari d. um brtt. 482,2.b, þar sem segir, að hver starfsmaður ríkisins og ríkisstofnana sé skyldugur að starfa að vinnu sinni 48 klukkustundir á viku o. s. frv., fór þessi atkvgr. fram með nafnakalli, þar sem 10 voru á móti því, að þessi breyt. væri tekin upp, vegna þess að hún ætti ekki heima í þeim lögum. Þar á meðal var ég. Þá lýsti hæstv. dómsmrh. því yfir, að hann væri með þessari till., því að hann teldi nauðsynlegt, að hún kæmi fram. Og þar sem hún hefði ekki komið fram í neinn öðru formi en hér, greiddi hann atkv. með henni. Nú vildi ég beina því til fjhn., hvort ekki væri hægt að taka slíka till. upp í þetta frv., því að hún á auðvitað heima í l. þeim, sem hér er verið að gera breyt. á, og sérstaklega þar til búið er að semja lög um réttindi og skyldur embættismanna, sem hæstv. dómsmrh. lýsti yfir, að ekki yrði á þessu þingi og kannske ekki því næsta. Þá eru engin lög, sem slík ákvæði eðlilega eiga heima i, nema einmitt þessi, sem hér er verið að gera brtt. við. Vænti ég þess því, að fjhn. ræði þetta mál við ráðh. og ríkisstj. og sjái, hvort ekki geti orðið samkomulag um að bæta hér inn till. svipaðri og þeirri, sem ég minntist á, að felld hefði verið með nafnakalli vegna þess, að hún ætti ekki í eðli sínu heima í því frv., sem þá var borið fram.