28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í C-deild Alþingistíðinda. (4243)
197. mál, laun starfsmanna ríkisins
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vil fyrst geta þess, að ég er samþykkur þessu frv., sem hér liggur fyrir og borið er fram vegna till. sparnaðarnefndar. Þessi n., sem hér er um að ræða, hefur aldrei haft annað að gera en taka á móti launum sínum, þannig að þessi n. er gersamlega óþörf. En út af því, sem hv. þm. Barð. sagði, vil ég taka fram, að ég skal ekki hafa á móti því og skal gjarnan vera með því að taka upp aftur b-lið till. um ráðsmanninn, til þess að koma honum hér inn. En ég vil minna hv. þm. á það, að þegar launal. komu fyrst fyrir þingið, voru í þeim ákvæði um starfstíma embættismanna, ýmis ákvæði svipuð þeim, sem verið er núna að tala um, að vanti. Þá var það, að þáv. forsrh., hv. þm. G-K., gekk hér berserksgang að fá þetta allt afnumið, sem líka tókst. Þegar búið var að fara svona með launal., var Gunnari Thoroddsen falið að hafa forgöngu um rannsókn á þessu máli og skila um það áliti, en það álit er bara ekki komið enn. Ég er þess vegna ekki viss um, þótt hv. þm. Barð. vilji koma með einhver ákvæði hér að lútandi og fella þau inn í launal., að það tækist að koma þeim þar inn. Ég er ekki viss um, að hér hafi orðið sú hugarfarsbreyting hjá þessum mönnum, að takast mundi að koma þessu inn í lögin. Hitt er annað mál, að ég skal gjarnan vera með í að reyna það.