28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í C-deild Alþingistíðinda. (4245)

197. mál, laun starfsmanna ríkisins

Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti. Hv. frsm. virti að nokkru ummæli mín, en ég vil endurtaka það, sem ég sagði, þar sem hér er um form. n. að ræða, að ég mæltist til þess, að fjhn. kynnti sér ástæður launþega gegnum samtök þeirra, sem eru Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, og tel ég það ekki að ófyrirsynju, þar sem um jafnfjölmennan hóp er að ræða, þó að fjmrh. vilji eitthvað annað. Mér er kunnugt um, að bandalagið er þessu mótfallið, og ég vildi, að sú leið yrði farin, að leita umsagnar bandalagsins um þetta mál. (BÖ: Óskar hv. þm., að frv. sé vísað til n.?) N., sem flytur frv., hefur það í höndum, þar til það er búið að fara gegnum allar umr. Það er ekki óvanalegt, að leitað sé umsagnar jafnþýðingarmikils aðila. Varðandi það, hvort n. verði launuð eða ekki, þá býst ég við, að bandalagið sætti sig við, að hún verði ólaunuð. Hitt er aðalatriðið, að nú er til þriggja manna úrskurðardómstóll um þessi mál, eins og gert er ráð fyrir í launal. nú, til þess að úrskurða, hvað telja beri aukastörf, í stað þess að það sé í höndum eins ráðh. Ég hygg, að allir muni telja, að það sé betra, að þrír óhlutdrægir menn fjalli um þetta. Ég vil beina þessu til hv. þm. N-M., sem er með frv. og vill leggja n. niður. Hann gáir ekki að því, að hér er um dómstól að ræða. (PZ: Hvað oft hefur þessi n. komið saman?) Það má vera, að verkefni hafi ekki verið fyrir hendi, hitt skiptir meiru, að n. er til, það er aðalatriðið fyrir mér, því að ég tel hana að vissu leyti jafnvel nauðsynlega.

Hv. þm. Barð. gaf hv. þm. N-M. tilefni til að koma inn á það, að inn í frv. ættu að koma ákvæði um vinnutíma opinberra starfsmanna. Um þetta voru átök, er launal. voru sett, og unnið var að því að taka út úr l. ákvæðin varðandi þetta, og meiri hl. Alþ. gekk inn á það. Hv. þm. G-K., sem hv. þm. N-M. nefndi sérstaklega, var ekki einn um það. Ég var þá á Alþ., en sat þá í Nd., og það var fullkominn meiri hl. fyrir því, að þetta stæði ekki í l. Varðandi það, hvort rétt sé að taka slík ákvæði inn í þetta frv., get ég lýst yfir því, að ég get ekki fallizt á það. Það þarf að undirbúa málið miklu betur, auk þess sem því munn verða gerð skil í hinu nýja frv. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. En ég vil þegar segja það, að sá vinnutími, sem opinberir starfsmenn hafa hér, er sá sami og gildir á Norðurlöndum, og það er ekki óeðlilegt, að opinberir starfsmenn hér vitni um þetta til starfsbræðra sinna í öðrum löndum. (GJ: Hvernig eru launakjörin þar?) Ég hygg, að þeir séu sízt verr haldnir, en okkar starfsmenn, miðað við dýrtíðina þar. Við vitum, hvernig okkar launal. eru, um kjörin í öðrum löndum höfum við fregnir, sem benda til þess, að þau séu sízt verri en hér. Það er ekkert nýtt, að hin Norðurlöndin launi sína starfsmenn betur en við. Tökum ráðherralaunin hér og þar. Tökum þingmannalaunin hér og þar. Svona er það á öllum sviðum. Þetta eru sjálfsagt ríkari þjóðir en við, og þó er það álitamál, ef miðað er við fólksfjölda. Þrátt fyrir styrjöldina hafa Danir og Norðmenn ekki klipið við nögl sér laun opinberra starfsmanna né heldur ætlað þeim óhóflega langan vinnutíma. Þetta vildi ég láta koma fram, því að ég er á móti því, að þetta verði sett inn í frv. óhugsað.