28.04.1949
Efri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í C-deild Alþingistíðinda. (4251)
197. mál, laun starfsmanna ríkisins
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Hv. þm. Barð. hefur tekið fram, að hann ætli að ræða þessi mál frekar við 2. umr., ef ég verði ekki hlaupinn á burt. Jæja, við skulum bíða og sjá hvað setur. En viðvíkjandi málinu vil ég aðeins segja það, að þegar starfsmannafundurinn var haldinn, þá sá hv. þm. ástæðu til þess að minnast á laun rektors frekar en annarra þeirra mörgu tuga embættismanna, sem þarna voru saman komnir og rækja sitt starf sízt betur en hann. Þetta er víst ekki að ráðast á hann persónulega? — Það, sem athygli mína vakti sérstaklega og varð þess valdandi, að ég kom hér inn á mál rektors, voru þau orð hv. þm. Barð., að hann hefði 15 stunda vinnuviku. En þetta er hreinasta blekking, vinnuvikan er 3–4 sinnum lengri, þótt kennslan sé aðeins 8 eða 15 stundir á viku. Miðað við vinnuviku eru því laun rektors sízt of há samanborið við aðra opinbera starfsmenn. Ég tel það hafa verið skyldu mína sem þingmanns að láta þetta koma hér fram, þegar ráðizt er að fjarstöddum embættismanni með dylgjum og svívirðingum, eins og hv. þm. Barð. hefur gert.