28.10.1948
Sameinað þing: 9. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (4285)
21. mál, jeppabifreiðar
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins segja örfá orð út af brtt., sem ég flyt á þskj. 26. — Það er mikið búið að ræða um það á Alþ. og utan þings, hvað jepparnir séu nauðsynleg tæki fyrir bændur landsins, og allir, sem um það tala, keppast við að lýsa vilja sinum á því, að þörfinni fyrir þessi tæki verði fullnægt sem bezt. Ég skal taka það fram, að ég álít ekki ofmælt um það, hvað þessi tæku séu nauðsynleg og rík nauðsyn á að fullnægja þörfum þeirra, sem þurfa að nota þau. En ég furða mig á því, að hv. flm. þessarar till. virðast hafa gleymt því atriði, sem hefur jafnvel meira að segja en aukinn innflutningur jeppanna, en það er að tryggja, að til séu nægar birgðir af varahlutum í þá jeppabíla, sem fyrir eru í landinu. Það er nú búið að upplýsa, að fluttir hafa verið inn um 1.220 svokallaðir landbúnaðarjeppar, en hins vegar er til hér í landinu töluvert mikið af herjeppabifreiðum, keyptum af setuliðinu, svo að fjöldi jeppabílanna mun vera upp undir 2.000. Nú er þegar orðin staðreynd um þessa jeppa, að margir þeirra hafa alveg stöðvazt vegna bilana, þar sem engir varahlutir hafa verið til í þá. Ég hef þess vegna leyft mér að flytja brtt. ásamt öðrum hv. þm., sem mundi bæta úr þessu, og vænti ég að sú n., sem fær þetta mál til athugunar, athugi einnig þessa brtt. og bæti þessu ákvæði inn í, áður en málið kemur til 2. umr. hér í Sþ.