01.11.1948
Sameinað þing: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í D-deild Alþingistíðinda. (4300)

21. mál, jeppabifreiðar

Steingrímur Steinþórsson:

Herra forseti. Það var óþarfi af hv. þm. Barð. og reyndar mjög óskynsamlegt af honum að vitna í ræðu hæstv. fjmrh. og telja, að hann hefði verið með þungar ásakanir í garð Búnaðarfél. Ísl., þar sem allir vita, sem viðstaddir voru þessa umr., að hæstv. ráðh. sagði, að Búnaðarfél. Ísl. hefði gert allt, sem það gat, til þess að skipta réttlátlega þessum farartækjum milli manna. En það er svo fyrir hv. þm. Barð. í þessu máli, að þegar hann er kominn í mát á einum stað, hopar hann í annað vígi. Fyrst ásakar hann Búnaðarfél. Ísl. með miklum rosta fyrir það að hafa misbeitt valdi sínu í þessum efnum. Þegar það er hrakið fyrir honum, hopar hann í annað vígi, og næst reyndi hann að koma sökinni í þessu efni á stjórnir hreppabúnaðarfélaganna, og taldi hann þau hafa sýnt hlutdrægni í þessum efnum. Síðar, þegar hann komst ekki upp með þetta, reyndi þessi hv. þm. að klína þessu á alla bændastétt landsins. Þannig hefur hann hopað úr einu víginu eftir annað og sýnt greinilega, að hann hefur farið með algerlega staðlausa stafi í þessu máli.

Það var alveg af fullum vilja, að ég hóf þessar umr. Ég vildi gera hreint fyrir dyrum Búnaðarfél. Ísl. Og það hefur tekizt til þessa. Hv. þm. Barð., sem ætlaði að ráðast á Búnaðarfél., honum hefur tekizt það að vonum ófimlega, og hefur hann orðið þar tvísaga í málinu. Og ekki er að furða, þó að þessum hv. þm. hafi gengið illa að sanna sakir á Búnaðarfél. í þessum efnum, þar sem hlutur Búnaðarfél. Ísl. er eins hreinn og verið getur í þessum málum. Þessi hv. þm. var að tala um, að einn jeppabíll hefði farið í hreppabúnaðarfélag, þar sem verið hefðu aðeins fimm meðlimir í félaginu. Þetta getur verið rétt, því að Búnaðarfélag Íslands tók þá afstöðu, að hvert hreppabúnaðarfélag fengi einn bíl. Þegar það byrjaði úthlutunina á þessum farartækjum, vissi það ekki annað, en að það mundi úthluta öllum þessum bílum til hreppabúnaðarfélaganna, en á miðju sumri tók nýbyggingarráð þessa úthlutun að sér.

Hv. þm. Barð. kvartaði mjög um, að stjórnir hreppabúnaðarfélaganna í Barðastrandarsýslu hefðu misnotað aðstöðu sína herfilega. Ég líð kinnroða fyrir að heyra hv. þm. Barð. segja þetta á hæstv. Alþ., heyra þetta fleipur hans til þess að reyna að svívirða hér á Alþ. menn þarna vestra, sem ekki hafa aðstöðu til andsvara, svívirða þá innan þinghelginnar, þar sem hann þó þorir ekki að koma fram með þetta utan þings. Þetta er líkt því, sem hv. þm. Barð. reynir í öllum málflutningi sínum. En það er þessum hv. þm. til skammar að haga sér svona gagnvart þessum bændum þarna vestur í Barðastrandarsýslu.