01.11.1948
Sameinað þing: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í D-deild Alþingistíðinda. (4302)

21. mál, jeppabifreiðar

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir því, að frv. fari til nefndar, og vænti þess, að fyrir dollara, sem við kunnum að fá, verði fluttir inn einhverjir jeppar á næstu árum. En ég vildi benda á það, að úthlutun á þeim jeppum þyrfti að verða með öðrum hætti, en hingað til. — Ég skal þó ekki í því sambandi slá fram neinum sleggjudómum eins og sessunautur minn, en aðeins taka tvö ákveðin dæmi.

Búnaðarfél. úthlutaði jeppum til bænda í einum stórum hreppi, og á árinu 1946 fékk einn bóndi þar vissu fyrir því, að honum yrði úthlutað jeppa. Um vorið var ég þar á ferð, og bóndinn segir mér, að það hafi komið símskeyti til sín frá nýbyggingarráði um það, að hann fái jeppa, sem það hafi úthlutað honum. En hann var þá búinn að fá jeppann frá Búnaðarfél. og spyr mig, hvernig á þessu geti staðið og hvort hann geti tekið á móti þessu. Ég sagði honum, að hann skyldi fá þetta búnaðarfélagi hreppsins í hendur, og hann gerði svo sem heiðarlegur maður. Þetta sýnir greinilega þær misfellur, sem urðu á úthlutuninni vegna þess, að tveir aðilar fóru með hana.

Hitt dæmið er svo það, að frá nýbyggingarráði sjálfu — í sömu úthlutuninni — fékk sami maðurinn 2 jeppa í einu, tvö bréf með sama póstinum, hvort tveggja um leyfi fyrir jeppa. — Hann spurði mig líka, hvernig hann ætti að snúa sér í þessu, og fékk sama svarið hjá mér, að hann skyldi afhenda leyfin búnaðarfélagi síns hrepps.

Svona mistök urðu mörg, og þau sýna tvennt: Í fyrsta lagi, að úthlutun verður að fara fram á einum stað, og í öðru lagi á stað, þar sem menn nenna að lesa listann yfir, svo að sami maður fái ekki bíl á bíl ofan, eins og dæmi eru til um úthlutun fólksbílanna, að sami maðurinn fékk alls 12 bíla — og verð ég að segja, að full ástæða væri til rannsóknar á því máli.