25.01.1949
Sameinað þing: 31. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (4306)
21. mál, jeppabifreiðar
Frsm (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Allshn. hefur rætt þessa till., og eru nm. sammála um afgreiðslu hennar, að einum undanskildum, sem var ekki á fundi n. Nefndin leggur til, að sú breyt. verði gerð á till., að í staðinn fyrir 600 bifreiðar, eins og stóð í till., komi 750, og er það gert samkvæmt tillögu frá Búnaðarfélagi Íslands, sem áætlað hefur þessa árlegu þörf fyrir þessi tæki. Enn fremur er sú breyt. á gerð, að gert er ráð fyrir, að inn verði fluttar hliðstæðar bifreiðar til landbúnaðarþarfa. Eins og hv. þm. mun kunnugt, er nú í Englandi farið að framleiða svipaðar bifreiðar og þær, sem fluttar hafa verið hingað frá Ameríku. Reynsla er að vísu engin fyrir þessum tækjum hér á landi. Hins vegar átti n. þess kost að sjá eina slíka, sem flutt hefur verið til landsins sem sýnishorn, og taldi n. þess vegna rétt, að ekki væri útilokað, að slíkar bifreiðar yrðu fluttar inn samkvæmt þessari till., enda þótt n. vilji í sjálfu sér engan dóm leggja á það, hvort þessi tæki reynast heppileg hér, en taldi eðlilegt, að íslenzkir bændur ættu þess kost að fá þau, ef slíkt reyndist heppilegt. Í öðru lagi er gerð sú breyt. af n. hálfu, að jafnframt verð'i séð fyrir nægilegum innflutningi á varahlutum til þessara tækja. Brtt. hafði verið flutt um það af einum hv. þm. á þskj. 33, og taldi n. rétt að taka hana upp í aðaltill., og það leiðir af sjálfu sér, að til þess ber brýna nauðsyn, að til þessara tækja fáist varahlutir. Í samræmi við þessa brtt. breytist svo fyrirsögn till. þannig, að hún verði till. til þál. um innflutning jeppabifreiða og hliðstæðra bifreiða til landbúnaðarþarfa.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð. Nefndin er sammála um, að brýn nauðsyn sé að fá þessi tæki, og lítur n. svo á, að Búnaðarfélagið, sem safnað hefur skýrslum og gert áætlanir um þörfina fyrir þau, hljóti að fara nokkurn veginn nærri um þá miklu þörf. Að sjálfsögðu verður stefnt að því í framtíðinni, að sem allra flestir bændur fái þessi tæki. Gjaldeyrismöguleikar landsmanna hljóta þó einnig að ráða miklu um það, hve mikið verður hægt að flytja inn af þessum tækjum, fyrst um sinn a. m. k. Ég hygg, að ég geti mælt þar fyrir munn allra nm., sem þátt tóku í afgreiðslu þessarar till., að þeim sé ljós hin brýna þörf fyrir þessi tæki og þess vegna verði að leggja á það mikla áherzlu að afla þeirra, jafnvel þó að hér séu miklir gjaldeyrisörðugleikar. Og það verður ekki gengið á snið við þær staðreyndir, að fólkinu er að fækka í sveitunum, og á meðan þjóðina vantar ýmsar tegundir matvæla, sem sveitirnar framleiða, er það augljóst, hvílík hætta það er, ef þessu fólki heldur áfram að fækka og fólki, sem stundar framleiðslustörf í sveitunum, fækkar, en hins vegar fólki, sem fæst við önnur ólífrænni störf, fjölgar.
Ég vænti þess vegna, að Alþ. samþ. þessa till., sem allshn. leggur fram.