25.01.1949
Sameinað þing: 31. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (4310)
21. mál, jeppabifreiðar
Gísli Jónsson:
Það hafa ýmsir hlutir skeð hér á Alþ. síðan þessi þáltill. kom fyrst, þann 18. des. s. l. Þm. mun vera ljóst, að síðan hafa verið gefin út l. í sambandi við dýrtíðarráðstafanir, þar sem lagður er þungur skattur á allan almenning til þess fyrst og fremst að auka útflutning frá landinu. Ég vildi leyfa mér að benda á, að það þótti nauðsynlegt að leggja nýjan 20–30 millj. kr. skatt á þjóðina til þess að tryggja um 100 millj. kr. útflutning á fiski, sem veiddur er á bátum hér við land. Mér hefði fundizt, að hv. allshn. hefði átt að taka þetta til athugunar í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Það hefur að sjálfsögðu ekki legið sú hugsun n bak við þá samþykkt og tryggingu þessa útflutnings, að um 9 millj. kr. ætti að verja til kaupa jeppa, en það virðist þó vera árangurinn af því starfi, ef þessi till. verður samþ. óbreytt. Ég vil benda á, hversu ummæli hæstv. viðskmrh. eru sanngjörn og eðlileg í þessu máli og að það stefni hér í þessu máli í hreinan voða, ef Alþ. ætlar að fara inn á þá braut að taka upp eina og eina vörutegund og samþ. um innflutning á henni, eins og hér er lagt til með þessari till., og þá helzt þá vörutegund á hverjum tíma, sem almenningur í landinu vill fá. Það leiðir af sjálfu sér, að það endar í hreinum voða í sambandi við innflutningsmálin. Í tilefni af því vil ég spyrja hæstv. ráðh., — hugsar hann sér yfirleitt að framfylgja þessari fyrirskipun Alþ., ef till. verður samþ.? Hugsar hann sér að uppfylla þessa ósk Alþ.? Má gera ráð fyrir, að inn verði fluttir, ef till. verður samþ., 750 jeppar á árinu 1949? Mér finnst mikils virði að fá að vita það. Ég verð að segja, að mér finnst hv. allshn. bera ákaflega lítið traust til bænda landsins með þeirri till., sem kemur frá n. Ég hef ekki þekkt bændur landsins að öðru en því, að þeir vildu leysa sín mál með tilliti til erfiðleika yfirleitt í landinu. Hér virðist það ekki sjónarmið hv. allshn., heldur að uppfylla óskir, sem yfirlýst hefur verið, að séu ýtrustu óskir bænda á þessu sviði. Mér dettur ekki í hug að halda fram, að þessir bændur standi svo fast á þessari kröfu, að þeir vildu ekki einnig láta athuga möguleika fyrir því að flytja þessa vagna inn og hvaða möguleikar væru til þess að greiða þá. Hér virðist hafa verið kapphlaup í n. að geta uppfyllt þessa kröfu, jafnvel meira en óskir stóðu til frá bændum. Ég á einnig bágt með að skilja, að jafnágætir menn og eru í hv. allshn. skyldu haga svona störfum sínum í svona stóru og viðkvæmu alvörumáli án þess að hafa samvinnu við viðskmrh., áður en málið er flutt hér. Ég vil því mælast til þess, að n. sjái ástæðu til þess að taka till. aftur til athugunar og ræða við hæstv. ríkisstj. og reyna að finna lausn á málinu, sem er í samræmi við önnur mál á Alþ., m. a. verðlags- og viðskiptamál. Ég vil einnig leyfa mér að benda á, að í sjálfri tillgr. segir, að þessi fjöldi bifreiða skuli einungis seldur bændum. Þetta eru náttúrlega ekki lagafyrirmæli, en mér þykir ákaflega einkennilegt, ef n. er sammála um, að af þessum fjölda bifreiða eigi ekki ein einasta að fara annað en til bænda, ekki til þjóðgarðsins, ekki til héraðslækna í erfiðum héruðum til þess að geta sinnt heilbrigðismálum sveitanna. Mér finnst þetta mál vera afgreitt á svo ákaflega einstrengingslegan hátt, að ég er alveg undrandi yfir því. Ég skal svo ekki ræða frekar um þetta atriði. En vegna þess, að við fyrri umr. þessa máls bar hæstv. menntmrh. á mig þungar sakir — og ég vildi þá ekki svara þeim, nema hann væri viðstaddur, — vildi ég nú segja nokkur orð í sambandi við þau ummæli, — ég kæri mig ekki um, að þau standi ómótmælt í þingtíðindum. Hæstv. ráðh. kallaði fram í fyrir mér og sagði, að það, sem ég hefði flutt, væri haugalygi, en hann sagðist ekki þurfa að standa upp til að mótmæla orðum mínum vegna þess, að þeir menn, sem væru hér á Alþ., vissu allir, hversu frámunalega lyginn ég væri, svo að enginn tæki mark á því, sem ég segði, hvorki utan þings né innan.
Þetta eru stór orð frá manni í ráðherrastól, en þau standa í þingtíðindum sem vitnisburður um það, hvernig menntmrh. hagar orðum sínum á Alþ. árið 1948. En út af þessu vildi ég benda á tvö dæmi. Annað er úr umr. á Alþ. um eitt af fyrstu stjórnarverkum ráðh., þegar formaður Framsfl., hv. þm. Str., lýsti því yfir, að það væri ekkert að marka, hvað ég héldi fram í umr. á Alþ., en varð að viðurkenna síðar, að ummæli mín um stjórnarstefnu þessa þm. væru rétt, þá einokunarstefnu, þegar hann veitti einum heildsala 500 þús. kr. lán án þess að spyrja Alþ. um það. En því var svarað, að það væri ekki svaravert, af því að það upplýstist frá þm. Barð. Ég vil einnig minna ráðh. á átökin milli mín og hans í umr. um gjaldeyrisyfirfærslur til námsmanna erlendis. Þá óskaði ráðh. þess og sagði, að enginn tæki mark á orðum mínum. En afgreiðsla málsins sýndi, hver mátti sín meir. Ég sé svo ekki ástæðu til að hýða hæstv. ráðh. meira í sambandi við þetta mál.