25.01.1949
Sameinað þing: 31. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (4312)
21. mál, jeppabifreiðar
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Ég skil vel, að hæstv. viðskmrh. vilji á þessum tímum kunna fótum sínum forráð og ganga hægt um gleðinnar dyr og verði ekki of ginnkeyptur að taka á móti samþykktum um aukinn innflutning yfirleitt. Við vitum, hvernig gjaldeyrisástæðum er háttað í landi okkar nú, þrátt fyrir það að s. l. ár fluttu Íslendingar út fyrir meira fé en nokkru sinni fyrr í sögu sinni og unnu mikið þrekvirki í auknum verðmætum útflutningsframleiðslu sinnar. En þrátt fyrir það að ég skilji þessa varfærni hæstv. viðskmrh., fæ ég ekki séð, að með þessari till., eins og hún var upphaflega flutt og eins og allshn. hefur gengið frá henni, sé gengið inn á svo hæpna braut sem hæstv. ráðh. vill vera láta. Ég sé ekki heldur, að sá samanburður, sem viðskmrh. gerði á því að samþ. slíka till. og samþ. till. um það t. d. að auka innflutning á heimilistækjum, eins og t. d. rafeldavélum og ísskápum, fái staðizt. Það, sem hér um ræðir, er ekkert annað en það, að Alþingi lætur í ljós þann vilja sinn, að öðrum aðalatvinnuvegi þjóðarinnar, sem berst í bökkum vegna skorts á tækjum og hefur orðið út undan í hinum gífurlega mikla bílainnflutningi á undanförnum árum, verði gert kleift að fá nokkuð af þeim tækjum, sem honum hentar. Ég fæ ekki séð, að á sama tíma og fjárhagsráð er að vinna að áætlun um hundruð tækja af þessari gerð, sé það glannaskapur af Alþingi að samþ. till. þá, sem hér liggur fyrir. Fjárhagsráð hefur skilið nauðsyn þess, að þessi tæki yrðu flutt inn, og hefur tekið það upp í áætlun sína, og í áætlun ríkisstj. samkv. Marshall-aðstoðinni er gert ráð fyrir verulegum innflutningi á þessum tækjum. En hér er eingöngu miðað við hitt, hvað við höfum bolmagn til þess að standast af eigin rammleik. Þess vegna fæ ég ekki séð, að það yrði talin nein goðgá, þó að Alþ. samþ. till. eins og þessa, sem fyrst og fremst er áskorun og viljayfirlýsing um það, að greidd skuli gata atvinnuvegar, sem berst í bökkum, — því að það gerir íslenzkur landbúnaður, — með því að láta honum í té nokkuð af þeim tækjum, sem langmest eftirspurn er eftir af þeim tækjum, sem bændur vanhagar um. Og eftir fáum eða engum tækjum er meiri eftirspurn hjá bændum en þessum bílum.
Ég vil svo segja til viðbótar, að þótt fjárhagsráð hljóti að sjálfsögðu að leggja höfuðdrættina í innflutningsáætlun þjóðarinnar á hverju ári, sem það starfar, er það fjarri sanni, að Alþingi geti ekki látið í ljós vilja sinn um innflutning ákveðinna tækja og vörutegunda, og kveður við nýjan tón á Alþingi, ef það er orðið átöluvert að samþykkja slíkt. Ég man ekki betur en samþ. hafi verið till. um slíkt og farið eftir þeim, um innflutning á ýmsum vörutegundum, t. d. ávöxtum. Þetta sýnir, að hér er ekki verið að skapa neitt nýtt fordæmi, sem jafnvel tefli virðingu þingsins og hag þjóðarinnar í tvísýnu, eins og mér virtist koma fram hjá sumum hv. þm.
Fleiri dæmi mætti nefna um þetta en ég hef nefnt, en ég sé ekki ástæðu til þess. Það er rétt hjá hæstv. viðskmrh., að vel hefði getað verið ástæða til að ræða við hann um þessa till. Það er ekki einu sinni víst, að þessari umr. verði lokið í dag, en ég hygg, að n., eða sá hluti, sem tekið hefur þátt í afgreiðslu þessarar till., hljóti að vera sammála um það, að afgreiðsla till., eins og lagt er til, að hún verði, er ekkert hæpin og ekki lagt inn á neina hæpna braut. Og ég endurtek það, að hér er ekki um sambærilegan hlut að ræða og ef þm. flyttu um það till., að nú skuli flytja inn rafmagnsvélar og ísskápa. Það er vitað, að kaupstaðir landsins hafa svo til einir rafmagn og hafa fengið fyrir tugi milljóna þessi tæki, sem áður voru nefnd. Sveitirnar hafa ekkert fengið, því að þær hafa ekkert rafmagn. Og ég vil taka það fram, að þótt n. hafi ekki haft samráð við hæstv. ráðh. um þetta, er það ekki vegna þess, að hún vildi ekki hlíta hans ráðum í þessu, því að það vill n. gera. En n. er, eins og hv. þm. er kunnugt, skipuð þm. úr öllum stjórnmálaflokkum, þó að einn þm. væri fjarverandi, þegar till. var endanlega afgr. — Ég hygg svo, að í sambandi við ræðu hæstv. viðskmrh. þurfi ég ekki að gera fleiri aths.
Ég vil, ekki fyrir hönd n., en persónulega, lýsa yfir samúð minni með hv. 5. þm. Reykv. í baráttu hans fyrir þessum eina bíl, sem hann hefur flutt frv. um, og tel fráleitt, að skjólstæðingur hv. þm. Barð. geti ekki fengið þennan eina bíl, ef þessi till. yrði samþ. Auðvitað er sami maður bóndi, þótt hann sé umsjónarmaður garðsins á Þingvöllum.
Varðandi þá fyrirspurn hv. 1. þm. Skagf. hvort upplýsingar hefðu borizt um þá jeppabíla, sem þegar hafa verið fluttir inn, er því til að svara, að stjórn Búnaðarfélagsins sendi n. skýrslu sína um úthlutunina, og mun form. n. hafa óskað þess fyrir hönd n. að fá upplýsingar um úthlutun þeirra bíla, sem nýbyggingarráð úthlutaði á sínum tíma. Var þessari ósk beint til fjárhagsráðs, en þaðan hafa ekki borizt upplýsingar um úthlutunina sjálfa, en hins vegar hefur form. í umr. um þessa till. gefið mjög greinilegar upplýsingar um úthlutunina, þó ekki farið út í að tilgreina einstaka menn. En út af fyrir sig skiptir engu máli fyrir afgreiðslu þessa máls, hvort fyrir liggur nákvæm úthlutunarskýrsla um þá jeppa, sem þegar hafa verið fluttir til landsins, því að það tilheyrir fortíðinni, en hér er hins vegar verið að fást við verkefni nútíðar og framtíðar.
Hv. þm. Barð. lét þau orð falla, að n. virtist ekki hafa mikla trú á, að bændur vildu hugsa um þjóðarhag. Það er fullkominn misskilningur hjá hv. þm., hafi hann lesið slíkt úr orðum mínum eða áliti n. Ég álít ekki, að í óskum bænda um aukinn innflutning á þessum nauðsynlegu tækjum felist nein óþjóðhollusta, á sama tíma og fluttar hafa verið til landsins 11 þúsund bifreiðar, sem langflestar hafa farið til Rvíkur. Ég fæ ekki séð, að það sé nein óþjóðhollusta, þótt bændur vilji fá verkfæri, sem skapi nokkuð aukna tryggingu fyrir því, að fólkið haldist við í sveitum landsins og vilji framleiða þann mat, sem kaupstaðarbúa vantar. Fyrir mér er það gersamlega aðalatriðið að koma í veg fyrir, að mikill hluti af þessum tækjum, verði þau flutt inn, lendi í höndum kaupstaðarbúa, sem fengið hafa þúsundir bifreiða á undanförnum árum. Og þótt orðalag till. sé eins og það er, mundi það ekki útiloka, að læknar í sveit fengju slík tæki. Ég að minnsta kosti trúi ekki, að hætta væri á því, að þetta yrði svo stranglega framkvæmt.
Ég vil að lokum leggja áherzlu á það, að það ber miklu brýnni nauðsyn til þess, að þessi tæki verði flutt inn, en margir gera sér í hugarlund. Hér er ekki farið fram á ónauðsynlegan hlut. Það er farið fram á, að Alþingi lýsi yfir ákveðnum vilja sínum í þá átt, að öðrum aðalatvinnuvegi þjóðarinnar verði gert nokkru léttara undir fæti í þeirri mjög svo hörðu baráttu, sem hann nú heyr. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að ýmsir af fulltrúum kaupstaðanna, sem oft hafa sýnt, að þeir hafa getað litið með sanngirni á málefni sveitanna, snúizt gegn þessu máli, enda þótt dimmt sé að sumu leyti í lofti í gjaldeyrismálum okkar nú. Ég vil þó benda á það, að yfir standa nú að vissu leyti merkileg tímamót í atvinnusögu þessarar þjóðar, þjóðar — og það hygg ég, að sé einsdæmi í sögu Evrópuþjóða — sem hefur aukið útflutning sinn um meira en 1/3 á s. l. ári, — þjóðar, sem hefur jafnfábreytta atvinnuvegi og íslenzka þjóðin og á jafnmikið undir sól og regni og hún. Þess vegna vænti ég, að hv. þm. samþ. þessa till., en legg ekki kapp á, að afgreiðslu hennar verði lokið í dag, og fer því fjarri, að ég vilji ekki hafa samráð við hæstv. viðskmrh. um afgreiðslu hennar.