02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (4325)
21. mál, jeppabifreiðar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Árn. þarf ekki að kenna mér neitt um það, hvaða þýðingu landbúnaðurinn hefur hér á Íslandi. Ég hef fullkomlega eins djúpan skilning á þeim málum eins og hann. Ég skal ekki ræða um sjávarútveginn við hann frekar, en mér þykir vænt um, að hann hefur lýst því yfir, að hann hefur ekki meint það, sem skilja mátti út úr orðum hans.
Ég stóð upp til þess að gera stutta fyrirspurn til hæstv. viðskmrh. Hann lýsti því yfir, að þær tölur, sem ég hafði nefnt í sambandi við bifreiðainnflutninginn, væru á misskilningi byggðar. Nú vildi ég spyrja hæstv. ráðh. um það, hvort má meira trúa því, sem ráðh. segir úr ráðherrastóli á Alþ., eða bréfi rituðu í ráðuneyti, með upplýsingum frá ríkisstofnunum. Fjvn. hefur, 27. f. m., fengið bréf frá fjmrn. með upplýsingum frá fjárhagsráði. Þar stendur m. a.: Fjárhagsráð áætlar innflutninginn, og svo koma ýmsar greinar hans og þar með 200 fólksbílar. Þar er svo reiknað skv. upplýsingum frá fjárhagsráði, að áætla megi gjöld af 200 fólksbílum og 500 vöru- og jeppabifreiðum. Ef þessar upplýsingar eru rangar, þá á ég enga sök á því. En ég vil fá að vita, hvort fjvn. muni þurfa undirskriftir frá öllum fjárhagsráðsmönnum og þess utan hæstv. ráðh. Það er þetta, sem ég vil fá upplýst.