02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í D-deild Alþingistíðinda. (4327)

21. mál, jeppabifreiðar

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Við fyrri umr. þessa máls flutti ég á þskj. 33 litla brtt. þess efnis, að jafnframt því sem leyfður væri innflutningur bíla og varahluta til þeirra, yrði og sett ákvæði um innflutning á varahlutum til annarra bíla. Hv. n., sú er um málið hefur fjallað, tók upp í nál. sitt, að flytja skyldi inn varahluti til jeppabíla, en hins vegar ekki til annarra. Mér skilst, og það kom fram við 1. umr., að þetta þætti eigi eiga við, því að hér væri um ákveðna stétt manna að ræða, og mætti ekki blanda saman tveim málum. Ég álít, að þetta séu ekki nægileg rök til að vísa frá brtt. minni, og flyt ég hana því aftur á þskj. 285 með þeirri breytingu, að jafnframt sé gert ráð fyrir varahlutum „til þessara og annarra atvinnubifreiða.“ Er ekki deilt um, að vegna hins mikla bílafjölda í landinu er nauðsynlegt að auka innflutning varahluta allverulega. Er það sparnaður, en engin sóun, því að þá sparast innflutningur á nýjum bílum og þar með erlendur gjaldeyrir. Svo er og hitt, að bílarnir nýtast miklu betur og lengur með þessu móti. Þetta álít ég síður en svo veigalítið atriði, og flyt því till. að nýju í þessu formi og vil fá hana borna undir atkv. Þó að hér sé um einstaka bíla að ræða, álít ég ekki rétt, að þörf sé á að greina svo á milli tækja, að það megi ekki koma fram till. um, að sama máli skuli gegna um aðra bíla. Og er þetta engan veginn nægileg ástæða til að vísa till. minni frá.