03.11.1948
Sameinað þing: 12. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (4344)
22. mál, landbúnaðarvélar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vildi gjarnan beina nokkrum atriðum til þeirrar n. sem fær þetta mál til athugunar, og vil biðja hana að athuga, hvort ekki væri líka þörf á að minnast á þau í till.
Ég vil þá fyrst minnast á það, að þegar lagt var fram fé á sínum tíma til nýrra tækja, sem gefið var nafnið nýsköpunartæki, þá var ætlaður ákveðinn hluti til landbúnaðarvéla. Ég skal ekki rifja upp, hvað það var mikið né heldur, hve mikill hluti af því var notaður, en vil benda á hitt, að nýbyggingarráði var þá sýnilega ljóst, að frá sömu verksmiðju er ekki hægt að fá nema takmarkaða tölu véla og fyrir hinar ýmsu verksmiðjur höfðu ýmsir menn umboð, sinn maður fyrir hverja. Nýbyggingarráð áleit þörfina svo mikla, að hún lét marga aðila fá umboð, sem varð til þess, að við höfum fengið hinar mörgu tegundir af vélum, sem vinna sams konar vinnu. Það sýnir sig, að ýmsir þeirra, sem höfðu þá innflutningsleyfi fyrir þessum vélum, telja sig engar skyldur hafa með útvegun varahluta í þær. Svo að segja nýjar vélar standa nú ónotaðar, af því að varahlutir hafa ekki verið fluttir inn. Ég býst við, að ef fullnægja á þessari till. eða þá þeim áætlunum, sem gerðar hafa verið í sambandi við þessar vélar, þá fari eins nú og áður, að það sé engin leið að fá þessar vélar frá einhverri ákveðinni verksmiðju og allar af sömu gerð, heldur fáum við yfir okkur flóð af vélum ýmissa tegunda, og því vil ég beina því til n. að leggja þá skyldu á herðar umboðsmanna að hafa þá varahluti til, sem með þarf, og að þeir fái því aðeins innflutningsleyfi, að þeir fullnægi því skilyrði. Það segir sig sjálft, að menn hafa meiri söluágóða af vél, sem kostar t. d. 6–7 þús. kr., en varahlut, sem kostar 6–7 kr. Ég legg mikla áherzlu á þetta. Ég skal ekki mótmæla því, að það komi margar gerðir, þó að það sé mjög hæpið og borgi sig betur að mínu áliti að bíða lengur. En ég legg áherzlu á það, að ef fara á inn á þessa braut, að flytja inn margar ólíkar vélategundir til sömu vinnu, þá sé það gert að skyldu að flytja inn varahluti, og innflutningurinn því aðeins leyfður, að umboðsmaðurinn skuldbindi sig til þess. Ég þurfti að fá varahlut í vél, og umboðsmaðurinn sagði: „Það er engin sala á þessu, stykkið kostar eina krónu, en þér getið kannske fengið svona stykki annars staðar.“ Og það fékkst annars staðar, en hann var ekki að skipta sér af þessu, því að það borgaði sig ekki fyrir hann, þar sem það var enginn söluágóði af svona hlutum.
Þá er það annað, sem ég vildi benda á, og það er, að þegar þess er gætt, hvað við erum í miklum gjaldeyrisvandræðum og vantar peninga til allra hluta, þá er líka mikil spurning, hvort á að leyfa þeim mönnum að flytja inn dráttarvélar, sem nenna ekki að láta vinna með þeim nema svolítinn tíma af sólarhringnum, og ætti að leggja á þá þá skyldu að láta þá nota þær allan sólarhringinn og hafa vaktaskipti, en þessar vélar hafa sums staðar ekki unnið nema takmarkaðan tíma og oft staðið ónotaðar tímunum saman. Ég teldi því rétt, að n. talaði um það við verkfærakaupanefnd, sem þarna hefur yfirumsjón, að hún hagaði svo til, að unnið væri að þessum vélum í vaktaskiptum allan sólarhringinn út. Þá nýttist vinnan betur og þá þyrfti færri vélar til að fullnægja eftirspurninni, en þegar ekki er látið vinna nema 8–10 tíma. — Þetta er annað atriðið, sem ég vildi biðja hv. n. að taka til athugunar í viðræðum sínum.