03.11.1948
Sameinað þing: 12. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (4346)

22. mál, landbúnaðarvélar

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta misskilning, sem fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni í sambandi við varahlutina. Því er nefnilega þannig varið, að fjárhagsráð veitir gjaldeyrisupphæð til þessara hluta, þ. e. véla og varahluta, í einu lagi, þannig að það er ekki sök fjárhagsráðs, heldur innflytjenda sjálfra, þegar þessa hluti vantar. Þó að það sé gott fyrir þá, sem verzla, að geta skotið sér á bak við fjárhagsráð, er ekki hægt að gera það í sambandi við landbúnaðarvélar og varahluti í þær, því að innflytjandinn ræður, hvað hann notar í varahluti og hvað í annað.