26.01.1949
Sameinað þing: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (4351)

22. mál, landbúnaðarvélar

Frsm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég hef litlu við að bæta frá því, sem sagt var við fyrri umr. Öll n. er sammála um að samþ. till. lítið eitt breytta, og geri ég ráð fyrir, að hv. þm. séu sömu skoðunar, og fjölyrði því ekki frekar um málið. Í brtt. n. segir, að fullnægt skuli þörf búnaðarsambandanna með stórar vinnuvélar, en að öðru leyti verði flutt inn svo sem mögulegt er af minni vélum og verkfærum. Vænti ég þess, að þingheimur sé á sömu skoðun og n. og till. verði samþ.