26.01.1949
Sameinað þing: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (4358)
22. mál, landbúnaðarvélar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég finn ástæðu til þess að gera grein fyrir skoðun minni á þessu máli, því að hún mun nokkuð sérstæð og ekki í samræmi við aðra flokksmenn mína.
Ég vil þá fyrst benda á það, að hér er um þáltill. að ræða, en ekki lög. Þál. eru viljayfirlýsingar, lög eru fyrirmæli. Það liggur fyrir um það hæstaréttardómur, að ríkisstjórn sé ekki skyldug að fara eftir þáltill., og þar sem til eru nokkur lög, sem vitað er, að ekki er farið eftir af núverandi ríkisstj., geri ég ekki ráð fyrir, að hún fari mikið eftir þáltill. Það skiptir því litlu, hvort till. verður samþ. eða ekki.
Þá tel ég ekki heppilegt, að Alþ. taki einstaka vöruflokka út úr heildarinnflutningsáætlun fjárhagsráðs og geri um þá samþykkt. Ég lít þannig á, að það þurfi að skoða og meta hvern einstakan vöruflokk í innflutningsáætlun fjárhagsráðs í samanburði við hina og heildina og því sé það óhyggilegt að samþ. þessa till. Það er kunnugt, að það hefur orðið ágreiningur um það í fjárhagsráði, hve miklu fé sé hægt að ráðstafa á árinu 1949 til landbúnaðarvéla, og þeim ágreiningi hefur verið skotið til ríkisstj., sem nú hefur málið til úrskurðar. Minni hlutinn — framsóknarmennirnir í ráðinu — hafa viljað verja til þess meira, en hinir telja mögulegt. Ég vil ekki með samþykkt þessarar till. styðja að því að nota mætti hana sem skálkaskjól til þess að minnka innflutninginn frá því, sem hann gæti orðið mestur, þegar tekið er tillit til allra aðstæðna á áætluninni, en til þess mætti nota till., ef samþ. yrði.
Þá er þess enn að geta, að ég tel, að nauðsynlegt sé, að á milli þeirrar nýræktar, sem gerð er í landinu ár hvert, og þess áburðar, sem inn fæst fluttur, þurfi að vera samræmi. Það er ekki gagn að nýræktinni, nema hún komist í rækt, en til þess þarf áburð. Ég vil því fá að vita, hvort séð er sæmilega fyrir áburðarinnflutningnum, áður en ég get fylgt þessari till., svo og kynnast innflutningsáætluninni í heild. Enn má fjvn. ekki gleyma því, að því meira fé, sem ætlað er til verkfærakaupa handa ræktunarsamböndum, því meiri styrk þarf að ætla til þeirra í fjárlögum, og vænti ég, að þessa verði gætt við samþykkt fjárlaga.
Þá var sagt hér í gær af þm. A-Húnv. undir umræðum um 21. mál og í dag af þm. Rang., að landbúnaðarframleiðslan væri að dragast saman. Þetta er ekki rétt. Það er rétt, að fólki í sveitunum hefur fækkað og býli hafa lagzt í eyði, en þrátt fyrir það hefur mjólkurframleiðslan aldrei orðið meiri, en árið 1948, og þótt kjötframleiðslan þá yrði minni en 1947, þá var hún meiri en áður og því ekki hægt að tala um samdrátt. Og garðmatur og grænmeti hefur ekki í annan tíma orðið meiri en 1948, enda stöðugt að aukast ár frá ári, þótt misjafnt árferði geri uppskeruna nokkuð misjafna. Og þetta kemur af því, að afköst einstaklinganna hafa aukizt, og það vegur meira, en fólksfækkunin. Þetta kemur sumpart af umbótunum, af jarðabótum, og því er bændum vitanlega lífsnauðsyn að fá verkfæri til að framkvæma þær með. En þetta kemur líka af meiri tækni, betri verkfærum o. fl., og þess vegna er þess þörf að flytja inn af þeim eins og frekast er mögulegt miðað við annað, sem líka er nauðsynlegt. En af nýræktinni hefur enginn gagn, nema hún komist í rækt, og þess vegna þarf framkvæmd hennar og innflutningur áburðar að vera í samræmi hvað við annað. Ég mun ekki geta fylgt þessari till., fyrr en ég sé, hvað koma á af tilbúnum áburði til landsins og hvernig innflutningsáætlunin að öðru leyti er, því að þar verður að meta saman hina einstöku vöruflokka, áður en hægt er að taka einn út úr heildinni og ákveða hve miklu skuli verja til hans.