01.02.1949
Neðri deild: 56. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í B-deild Alþingistíðinda. (438)
17. mál, kjötmat o.fl.
Sigurður E. Hlíðar:
Herra forseti. Viðvíkjandi þeim atriðum, sem hv. þm. V-Húnv. og hv. frsm. landbn. komu inn á og varða aðallega 5. gr., þ.e. læknisskoðunina og hvernig henni skuli framfylgt, þá munu ákvæðin um það hafa vakið nokkurn ugg hjá hv. þm. V-Húnv., enda skal ég játa, að í 5. gr. er gengið mjög langt miðað við það, sem áður hefur verið. T.d. er ákvæðið um það, að allur sláturfénaður skuli læknisskoðaður 12 tímum fyrir slátrun algert nýmæli í íslenzkri löggjöf, en slík ákvæði eru í lögum nágrannaþjóða okkar, bæði Dana, Svía, Norðmanna og Englendinga. Englendingar hafa þó tjáð mér, að nokkur vanhöld verði á þessu í framkvæmd, en það er alls staðar heimtað, ef hægt er. Í Danmörku er þessu stranglega framfylgt.
Svo er það hitt atriðið, um að innyflin skuli skoðuð, og finnst mér það tvímælalaust rétt. Þegar t.d. stórgripum er slátrað heima og kjötið sent t.d. hingað til Reykjavíkur, þá finnst mér, af fenginni reynslu, mjög ábótavant að fá ekki innyflin með til skoðunar. Ég býst við, að í þessu stríði yrði farið vægt í sakirnar, því að ekki er hægt að heimta, að allt gumsið sé sent með, en sjálfsagt er að fá nauðsynlegustu líffæri, svo sem lifur og lungu, enda geta bændur komið því í verð eins og kjötinu. Ég tel þetta ákvæði nauðsynlegt í okkar löggjöf, a.m.k. ef við ætlum að flytja út kjöt. Og við gerum einnig sjálfir kröfur um heilbrigði og hreinlæti. Ég veit ekki, hversu háværar raddir eru um það á stöðum úti um land, en hér í Reykjavík eru uppi sterkar og háværar raddir um það, að fullkomin heilbrigðisskoðun sé á öllu kjöti, sem selt er á opinberum markaði, og ég tel, að hér sé löggjafinn á alveg réttri leið. Hins vegar má ekki beita ákvæðunum um þetta allt of stranglega, enda ekki alltaf hægt. T.d. á stöðum, þar sem tugum Þúsunda sauðfjár er slátrað á hverju hausti og rekstrarnir koma með stuttu millibili svo að segja allan sólarhringinn, þá getur læknirinn ekki alltaf hlaupið frá kjötskoðuninni til að skoða nákvæmlega hvern rekstur, og hver einstaklingur hjarðarinnar verður ekki nákvæmlega skoðaður nema um stórgripi sé að ræða. En við verðum að hafa þessi ákvæði í okkar löggjöf og reyna svo að liðka til og ganga ekki lengra en nauðsynlegt er, t.d. varðandi heimaslátrunina.