29.03.1949
Sameinað þing: 58. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (4403)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Ólafur Thors:
Þetta liggur þá klárt fyrir, og ég get upplýst það að gefnu tilefni, að það varð að samkomulagi milli hv. 2. þm. Reykv., Einars Olgeirssonar, fyrir hönd stjórnarandstöðunnar og mín fyrir hönd þeirra flokka, sem að ríkisstj. standa, að gefnir væru út aðgöngumiðar að þinghúsinu, þannig að hver þm. fengi 3 miða til ráðstöfunar. Á þetta féllst Einar Olgeirsson, enda var það líka sjálfsagt og réttlátt. — Svo kemur einn hv. þm. hér í morgun, og lögregluþjónn þekkir ekki manninn. Hann segir, að sá einn, sem aðgöngumiða hafi, fái að komast inn, — „eða hefur þú aðgöngumiða?“ Hann sagði, að hann hefði hann ekki, en hann sagði ekki: Ég er einn af alþingismönnum Íslendinga, og ég þarf því ekki neinn aðgöngumiða. Ég trúi því ekki, ef hann hefði sagt þetta við lögregluþjóninn, að hann hefði haldið að hv. þm. væri að ljúga, heldur þvert á móti hefði hann trúað honum og hleypt honum inn undir eins. En eins og lá í ræðu hv. þm., þá hefur hann ekki sagt þetta, og afleiðingin af því hefur svo orðið sú, sem okkur er kunn. Ég ætla svo ekki að orðlengja þetta frekar.