29.03.1949
Sameinað þing: 58. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í D-deild Alþingistíðinda. (4406)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Það þarf ekki að halda hér langa ræðu um þetta góða mál, vegna þess að það var rætt um það ýtarlega í gærkvöld við umr. þá í áheyrn alþjóðar. Þar komu fram öll rök í málinu, með og móti. Og eftir þær umr. blandast engum hugur um, að það er ekki aðeins rétt, heldur líka sjálfsagt að gerast aðili að samningi þeim, sem hér er um að ræða.

Ísland þarf, ekki síður en önnur lönd og ríki, á öryggi að halda. Fyrr á tímum, meðan samgöngutæknin var ekki komin á eins hátt stig og nú, þá var landið úr leið, og þess vegna var það ekki heimsótt af fjandsamlegum herjum eða fjandsamlegum öflum. Á síðustu áratugum hefur þetta breytzt. Það kom á daginn, að eftir að fjarlægðir milli landa skiptu minna máli en áður var, þá stoðuðu hlutleysisyfirlýsingar ekki neitt. Það kom einnig í ljós varðandi okkur. Fyrst þegar reyndi á hlutleysisyfirlýsinguna frá 1918, árið 1940, þá stoðaði hún ekkert, enda hafði sérstakur flokkur hér, sem annars hefur ekki verið sérstaklega glöggskyggn á málin, aldrei þessu vant skilið, að hlutleysið er ekki mikils virði, og bent á hvernig mundi fara, og reyndust þeir spádómar réttir hjá honum. En úr því að svo fór, að bæði fjarlægðin hætti að hafa þessa þýðingu og hlutleysisyfirlýsing stoðaði ekki neitt, þá urðu Íslendingar að leita annarra ráða til þess að sjá öryggi landsins borgið, og gengu þeir þess vegna inn í Sameinuðu þjóðirnar. Það var gert með samþykki Alþ. á árinu 1946. En svo hörmulega hefur tekizt til, að starfsemi Sameinuðu þjóðanna hefur ekki fullnægt þeim vonum, sem menn gerðu til hennar. Og afleiðing þessa hefur ekki aðeins orðið Íslendingum ljós, heldur öllum frelsiselskandi þjóðum. Þess vegna hafa hinar friðelskandi lýðræðisþjóðir í vesturhluta Evrópu og Norður-Ameríku bundizt samtökum og efnt til bandalags sín á milli, sem ráðgert er að stofna nú innan stundar. Það er Norður-Atlantshafsbandalagið. Íslendingum hefur verið boðin þátttaka í því bandalagi, og þess vegna höfum við fengið samning þennan, eins og hann liggur hér fyrir. Við höfum kynnt okkur samninginn ýtarlega og aðstæður allar og gert okkur ljósa grein fyrir því, hvaða réttindi og hvaða skyldur eru í þessu fólgnar. Og það er augljóst, að Íslendingar fá þarna mikið öryggi frá því, sem nú er, en á þá leggjast hins vegar engar óþægilegar skyldur, þvert á móti er samningurinn svo rúmur, að sérstaða Íslands í einu og öllu samrýmist honum til hlítar. Þess vegna, þegar tekið er tillit til þess, að við Íslendingar getum komið fram öllum þeim sérsjónarmiðum, sem okkur eru nauðsynleg sem íbúum lítillar, vopnlausrar og friðsamrar þjóðar, og þar sem í samningnum felst mikið öryggi frá því, sem verið hefur, þá er það ekki álitamál, að frá Íslands sjónarmiði er rétt að gerast aðili að þessum samningi. Til viðbótar er svo það, að segja má, að friðarvonir mannkynsins séu nú tengdar við þennan samning. Það er áreiðanlegt, að það er engin ein ráðstöfun, sem mannkynið getur gert nú, sem líklegri er til að koma í veg fyrir stríð og miklar hörmungar, heldur en að þessi samningur sé gerður. Og þó að það muni ekki sérstaklega mikið um hluta Íslands, þá er engu að síður rétt fyrir Íslendinga að láta ekki sitt eftir liggja, og einkanlega þegar ekki er annars af þeim krafizt í þessu sambandi, en að þeir taki upp frjálsa samvinnu við aðrar frjálsar lýðræðisþjóðir, en annað og meira en það felst ekki í þeim samningi, sem hér liggur fyrir.

Vegna þess að ég gerði ýtarlega grein fyrir samningnum, aðdraganda hans og einstökum ákvæðum, í ræðu minni hér í gær, sé ég ekki ástæðu til þess að lengja mál mitt. Það yrði einungis endurtekning, og ég legg heldur málið fyrir hv. þm. og vonast til, að það fái góðar undirtektir, svo sem vert er.