29.03.1949
Sameinað þing: 58. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í D-deild Alþingistíðinda. (4432)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég hef aldrei frá því fyrst er ég kom á þing upplifað það, sem ég hef upplifað í dag. Hversu lítilfjörlegt mál sem um hefur verið að ræða, þá hefur það ekki þekkzt, að umr. væru skornar niður þegar á fyrsta degi. Ég hef setið á þingi í 12 ár, og það hefur aldrei komið fyrir á þeim tíma. Hvað er hér um að vera? Hér er um það að ræða að beita því í stærsta máli, sem fyrir Alþingi hefur komið, að taka málfrelsi af þm., eftir að búið er að gefa fyrirheit um, að Alþingi geti verið öruggt um að hafa nægan tíma til að ræða málið, þegar það komi fyrir. Blað hæstv. forsrh. segir 1. febr. — með leyfi hæstv. forseta: „Alþýðublaðið telur þá hugsun fráleita, og alveg ástæðulaust að óttast, að ákvörðun í slíku stórmáli verði tekin, fyrr en þjóðinni hafi verið kynntir vel allir málavextir og þeir verið ræddir gaumgæfilega frá öllum sjónarmiðum.“ Svona voru loforð blaðs hæstv. forsrh., meðan reynt var að þagga niður í þjóðinni. Þegar hæstv. utanrrh. var í Ameríku ásamt hæstv. menntmrh. og hæstv. viðskmrh., þá tilkynntu þeir heiminum, að þeir segðu ekkert um, hvað Íslendingar mundu gera. Við leggjum samninginn fyrir Alþingi, sögðu þeir, og það ræður. Hvað skeður svo? Það er byrjað að ræða samninginn kl. 10 í morgun, og þá er þegar bundið fyrir munninn á þm. Þá er ræðutíminn styttur með þeim aðferðum, sem aldrei hafa tíðkazt. Þetta minnir mig á mynd eftir franska málarann Daumier. Myndin var af manni, sem bundið var fyrir munninn á og hét „Hinn ákærði hefur orðið“.
Í dag hefur Alþingi Íslendinga orðið gegn Bandaríkjunum, og þá er bundið fyrir munn þingmanna. Þetta byrjaði í gær með því, að stjórnarliðið svipti þm. málfrelsi, og það mun verða munað. Ég vil því láta það koma greinilega fram, að Alþingi er beitt ofbeldi. Svona eru aðferðirnar, þegar heim kemur, þótt hæstv. utanrrh. segi í Washington, að hann ætli að leggja málið fyrir þingið og það eigi að ráða. En nú vill hæstv. utanrrh. alls ekki, að málið sé rætt. Hann segir: Ég hef ekki blandað mér inn í umr. og elti ekki ólar við —, ég stend ekki í málþófi o. s. frv., o. s. frv. Hann hefur aðeins tekið tvisvar til máls, nú áðan og þegar hann flutti framsöguræðuna, og hún var stytzta framsöguræða, sem heyrzt hefur á Alþingi. Það hefði áreiðanlega verið haldin lengri framsöguræða, þótt um hrossageldingar hefði verið að ræða. Hvað er ríkisstj. að sanna með þessu framferði sínu? Hún er að sanna það, að hún hefur málstað, sem hún þorir ekki að verja, og svo segir hæstv. utanrrh., að hann vilji ekki hlusta á leigða menn. Heyr á endemi! Hver flaug til Ameríku, eftir að slett hafði verið í hann 2½ milljón dollara? Svo dirfist þessi hæstv. ráðh, að tala um leigða menn, maður, sem sjálfur er leigður frammi fyrir öllum heimi fyrir 2½ milljón dollara, sem slett var í hann, svo að hann gæti enn svolitla stund haldið ríkisbúskapnum gangandi, þegar allt fé þjóðarinnar var að ganga til þurrðar, eytt og stolið, fyrir aðgerðir hæstv. ríkisstj. Og nú á að taka málfrelsið af þm., áður en aðildin að Atlantshafsbandalaginu er samþ., og ef það er gert, hvað verður þá síðar, þegar við erum komnir í bandalagið? Við þekkjum fyrirheitin, og við þekkjum efndirnar. Það var sagt í umr. um Keflavíkursamninginn, að við ættum þar að ráða einu og öllu, það væri ekki hætta á öðru, og meira að segja: Gvendur Í. væri lögreglustjóri þarna suður frá. Hverju höfum við svo ráðið? Engu. Enda þorir hæstv. utanrrh. ekki að láta ástandið á Keflavíkurflugvelli vitnast almenningi. Ákærður fyrir að svíkjast um að innheimta tolla af Ameríkönum og hafa þannig milljónir króna af ríkissjóði og ákærður fyrir að láta viðgangast þar hin herfilegustu lögbrot, þá þorði hann ekki að láta málið ganga til nefndar hér í þinginu, svo að embættismenn ríkisins mætti kveðja til sem vitni. Síðan þetta var er svo ástandið á Keflavíkurflugvelli ekki aðeins orðið stórkostlegt hneyksli hér innanlands, heldur er það orðið alþjóðlegt hneyksli og smánarmál, og í hálfan mánuð hafa hæstv. ráðh. svikizt um þá lagaskyldu að svara fyrirspurnum mínum um ástandið á vellinum og afskipti ríkisstj. af því. Þeir ætla að hespa þetta mál í gegn, áður en almenningur fær að vita, hvernig öll lög og allar reglur eru brotnar þarna suður frá.
Hv. þm. Ísaf. talaði um það, að þjóðvarnarmenn og aðrir andstæðingar Atlantshafsbandalagsins hefðu haldið uppi einhliða áróðri, en þyrðu ekki að ræða málið frá báðum hliðum. Af hverju gangast ekki stuðningsmenn bandalagsins fyrir fundi og bjóða andstæðingum þess að mæta? Ég skal nú skora á hv. þm. Ísaf. að mæta mér á útifundi hér í Reykjavík, þar sem þetta mál væri á dagskrá. Hér er um að ræða valdatöku Bandaríkjanna á Íslandi. Hér er um að ræða þá stærstu stjórnskipunarbreytingu, sem orðið hefur, þegar breyta á friðarríki í hernaðarríki, og þetta á að gera án þess, að þjóðin viti af því, helzt á einni nóttu, en þeir þora ekki að tala við fólkið, og ég endurtek áskorun mína til hv. þm. Ísaf. um að mæta mér á útifundi um þessi mál. Hv. þm. Ísaf. síteraði í stefnuskrá Alþfl. Hann virðist alveg búinn að gleyma fortíð Alþfl. og hinum fyrri hugsjónamálum hans. Hann virðist búinn að gleyma öllum bókunum, sem hann þýddi, eins og t. d. Jimmie Higgins o. fl., og hann virðist búinn að gleyma því, hvað Alþfl. á Ísafirði var sérstaklega duglegur að útbreiða sannleikann um auðvaldið í Bandaríkjunum. Annars býst ég ekki við, að hv. þm. vilji, að ég fari nánar út í þetta, því að fortíð hans gæti valdið því, að Ameríkumenn teldu hann grunsamlegan, og það félli honum vafalaust mjög illa. Þessi hv. þm. taldi samtök Austur-Evrópuþjóðanna, sem stofnuð hafa verið eftir lok síðustu heimsstyrjaldar, brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna, en því fer fjarri, því að í 53. gr. sáttmálans eru slík samtök leyfð gegn Þýzkalandi og bandamönnum þess, og það er alltaf tekið fram í samningunum milli þessara ríkja, að samtökin séu mynduð gegn þeim ríkjum. Hins vegar er þetta Atlantshafsbandalag brot á 52.–53. gr. sáttmálans, því að sú bandalagsstofnun, sem þar er gert ráð fyrir, á eingöngu að vera til þess, að bandalagsríkin leysi sameiginlegar deilur, sem þau kunna að lenda í. Það er freistandi að fara út í lagaskýringar í sambandi við þetta mál, og ég hef sýnt fram á, að Ísland brýtur sáttmála Sameinuðu þjóðanna, ef það gengur í Atlantshafsbandalagið. Hins vegar er auðséð, að þessi mál fást ekki rædd við hæstv. ríkisstj.
Hvað er eiginlega að gerast á Íslandi þessa dagana? Það er byrjað á því að koma hér upp harðstjórn í skjóli amerísks hervalds. Það er nú farið að framkvæma það, sem foringja íhaldsins hefur hingað til aðeins getað látið sig dreyma um. Íslendingar eiga engu að fá að ráða. Ríkisstj. beitir ofbeldi við Alþingi, og flokkshandjárn eru sett á hæstv. forseta Sþ., til þess að hann brjóti á þm. þann rétt, sem þeim hefur verið löghelgaður í stjórnarskránni. Ég skal ekki neita því, að þessar aðfarir séu í samræmi við það innihald, sem hér liggur fyrir. Það er kannske ekki óviðkunnanlegt, að samningurinn, sem á að fórna íslenzku þjóðinni fyrir auðvald Bandaríkjanna og leppríkja þess, sé kúskaður í gegn með ofbeldi. Það, sem nú er að gerast, er það, að auðmannastétt Íslands hefur kallað á erlent vald inn í landið til þeirra afskipta, sem byrjuðu hér í dag. Og afskipti Bandaríkjaauðvaldsins leiða ekki til annars en svívirðu og spillingar. Það hendir peningum í ríkisstj., eins og kaninn hendir tyggigúmmíi í kvenfólkið suður á Keflavíkurflugvelli. Við skulum bara bíða og sjá, til hvaða spillingar og ofbeldis afskipti Bandaríkjaauðvaldsins leiða, og þegar við höfum séð það, sem gerzt hefur nú, áður en Atlantshafsbandalagið er samþ., hvað mun þá síðar? Ég vil mótmæla því, að Íslandi sé þannig fórnað fyrir auðvald Bandaríkjanna, án þess að þjóðin fái að vita og Alþingi fái að ræða, hvað í húfi er. Ég mótmæli því, að ráðh., sem liggja undir ákæru Alþingis fyrir afbrot, eins og hæstv. utanrrh., og ráðh., sem liggja undir ákæru fyrir að hafa stolið húsum af samtökum alþýðunnar, eins og hæstv. forsrh., — ég mótmæli því, að þessir ráðh., sem raunverulega ætti að draga fyrir landsdóm, beiti Alþingi ofbeldi til þess að láta það afgreiða mál eins og þetta með þeim aðferðum að brjóta allt í senn: lög, reglur og stjórnarskrá.