30.03.1949
Sameinað þing: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í D-deild Alþingistíðinda. (4459)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Það er fjarstæða, að umr. hafi ekki verið ýtarlegar um þetta mál, þar sem fyrst hefur farið fram um það útvarpsumr. og síðan rætt hér í allan gærdag, auk þess sem andstæðingar málsins hafa haft mest allan tímann og eru því sannarlega búnir að segja allt, sem þeir hafa fram að færa gegn málinu. Þess vegna segi ég já. (ÁkJ: Það er langt frá því, að öll rök séu komin fram, sem til eru gegn málinu.)