30.03.1949
Sameinað þing: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í D-deild Alþingistíðinda. (4465)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Frsm. 1. minni hl. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Ég mun nota þennan hálftíma til þess að gera grein fyrir minni afstöðu til þessa máls. Það var af hv. þm. G-K. beint til mín orðum viðkomandi Þjóðabandalaginu, út af því að hann áleit, að ég hefði tekið fram í fyrir sér, sem var reyndar ekki. En þetta rifjaði upp fyrir mér þann óslitna þráð, sem hefur alltaf verið í afstöðu Íslands og afstöðu alþm. hér á Alþ. að meira eða minna leyti viðkomandi alls konar bandalögum af því tagi, sem nú er verið að ræða hér um. Það var þá sett fram af mér og ýmsum öðrum, en fékk ekki þær undirtektir, sem við óskuðum, þó að það fengi nokkrar undirtektir, að við ættum að setja einmitt sams konar skilyrði fyrir því að ganga í þjóðabandalagið eins og við viljum nú hafa ljóst fram tekið, er við göngum inn í Norður-Atlantshafsbandalagið. Og mér koma þessi skilyrði nú ekki á óvart, og þau koma sjálfsagt engum á óvart, því að það lítur út fyrir, að það sé útbreidd skoðun í sambandi við inngöngu okkar í þjóðabandalög. Og ég lét í ljós þá skoðun, er við gengum í Bandalag sameinuðu þjóðanna, að ég byggist frekast við, að það þjóðabandalag mundi mistakast, en mér þótti rétt, að við tækjum þátt í því fyrir því. Og ég gerði þá ráð fyrir, að við mundum áður en langt liði þurfa að taka þátt í umr. á Alþ. um að taka þátt í nýjum þjóðasamtökum. Ég tók þetta fram þá. Og þetta mun hafa verið almennur kvíði, sem ég lýsti í þessum orðum mínum þá. Við vildum þá einnig gera fyrirvara við inngöngu okkar í Bandalag sameinuðu þjóðanna. Og þessi þráður er alveg óslitinn, ekki aðeins í þessu máli, heldur hefur hann verið það um aldir, að við viljum ekki segja neinni þjóð stríð á hendur. Og þegar talað var um það sem skilyrði fyrir inngöngu í Bandalag hinna sameinuðu þjóða, þá gáfum við þá yfirlýsingu, að við vildum ekki segja neinni þjóð stríð á hendur, og vöktum athygli á því jafnframt, að við hefðum tekið allan þann þátt í styrjöldinni, sem við gætum nokkurn tíma tekið, og að öllu öðru leyti heldur en því að beita vopnavaldi. Þannig liggur það fyrir, að þegar okkur var boðið að gerast stofnaðilar að Bandalagi sameinuðu þjóðanna, þá komum við með þessa yfirlýsingu, að við neituðum að segja nokkurri þjóð stríð á hendur. Og þegar við tókum þátt í þessu bandalagi, höfðum við þennan fyrirvara, þó að honum væri ekki komið lengra á veg en raun bar vitni um.
Ég geri ráð fyrir, að viðhorf þjóðarinnar viðkomandi Norður-Atlantshafsbandalagi sé talsvert mismunandi. Það eru sumir, sem enga samninga vilja gera í þessu efni, sem er fyrst og fremst Sósfl. svo og ýmsir aðrir. Aðrir eru þannig sinnaðir, að þeir vilja gera þessa samninga, svo að segja hvernig sem þeir væru. En þriðji hópurinn meðal þjóðarinnar er þannig, og í þeim hópi er ég, að þeir munu vilja gera þessa samninga, ef þeir telja, að þannig sé frá þeim gengið, að þeir séu algerlega öruggir, annars enga samninga. Og í því sambandi ætla ég að gera grein fyrir því, hvernig ég álít, að ætti að ganga frá þessum samningum, til þess að þeir séu öruggir. Það er ekki hægt að lá neinum Íslendingi það, þó að hann vilji fara varlega í utanríkissamningum. Þetta er þjóðinni í raun og veru í blóð borið, þjóð, sem hefur í margar aldir barizt til þess að ná sjálfstæði sínu, eftir að hún hafði glatað því vegna þess, að hún hafði gert samning, sem gamli sáttmáli kallast, þó að ýmsir áliti, að hann hafi verið mjög sæmilega gerður, en að það hafi verið samningsrof, sem ollu því, hvernig fór. Það er því ekki óeðlilegt, að þessi þjóð vilji ekki gera aðra samninga en örugga samninga, eftir alda kúgun. Við gerðum herverndarsamninginn við Bandaríkin 1941. Niðurstaða þess er sú, að við, eftir því sem fyrrv. hæstv. ríkisstj. segir, urðum að kaupa okkur frá þeim samningi vegna þess, hvernig hann var túlkaður, með samningnum um Keflavíkurflugvöllinn. Ég er að vísu þeirrar skoðunar — án þess að ég ætli að ræða það sérstaklega hér að Bandaríkjamenn mundu aldrei hafa haldið svo fast við þá túlkun á samningnum, sem þeir kunna að hafa orðað, að það hefði þurft að kaupa sig frá herverndarsamningnum frá 1941. En svo mikið er víst — án þess að rætt sé um túlkun þessa samnings nánar —, að það orðalag á samningnum frá 1941, sem hangið var í, var svo undarlega veikt fyrir þá, sem í því héngu, að fáum mundi hafa komið til hugar, að reynt yrði að túlka samninginn á þann veg, sem gert var, því að það voru í raun og veru kurteisiskveðjur í endi þess símskeytis, sem við fengum frá stjórn Bandaríkjanna, sem var hangið í. Það var rætt um það, að herinn ætlaði að fara héðan strax að stríðinu loknu. Þau skilyrði voru samþykkt í svari Bandaríkjaforsetans, en síðan var tekið fram í svarbréfinu, að herinn mundi fara héðan, þegar núverandi hættuástandi væri lokið. Og í því var hangið, að því er fyrrv. hæstv. ríkisstj. heldur fram. Og þá var gerður svokallaður Keflavíkursamningur. Og án þess að ég ætli að ræða þann samning nú, þá er a. m. k. fullvíst, að þær skýringar, sem gefnar voru á þessum samningi, og þau loforð, sem gefin voru um framkvæmd hans, þessar skýringar hafi ekki staðizt og þessi loforð hafi ekki verið haldin. Það er þess vegna ekki undarlegt, þó að þjóðin muni þetta. Þetta eru staðreyndir, sem eru til í okkar þingsögu, og þetta er skráð í okkar þingtíðindum. Þess vegna er það svo að mínu áliti, að sú raun, sem á þessum málum er orðin, gerir það að verkum, að þjóðin vill ekki gera aðra samninga en þá samninga, sem öruggir eru. Og við þurfum ekki að undrast yfir því, eftir þá reynslu, sem á undan er farin, gamla og nýja, þó að þjóðin geri þessa kröfu til okkar. Og ég segi það fyrir mitt leyti, að ég get ekki vikið frá því. Ég er heldur ekki að efast um það, að aðrir hv. þm. vilji fylgja sömu reglu, að þessa samninga eins og aðra mundu þeir telja, að við verðum að gera í samræmi við það, sem við mundum gera, ef við værum að gera samninga milli einstaklinga, fyrir sjálfa okkur eða í umboði annarra, og ganga svo tryggilega frá öllum atriðum samninganna, að ekki verði um villzt.
Okkur er nú sagt — eins og kemur fram í grg. fyrir þessari þáltill., að ef til ófriðar kæmi, mundu bandalagsþjóðir okkar óska eftir svipaðri aðstöðu á Íslandi eins og þessi ríki höfðu í síðasta stríði, og það mundi algerlega verða á valdi Íslendinga sjálfra, hvenær þessa aðstoð ætti að láta í té, að allir aðrir samningsaðilar hefðu fullan skilning á sérstöðu Íslands, og að ekki kæmi til mála að erlendur her eða herstöðvar yrðu á Íslandi á friðartímum. Þetta er okkur sagt af hæstv. ráðherrum, að sé efni samningsins, eins og hann beri að skilja og skýra. Nú skal ég taka það fram, að ég ætla, að það sé mikill hópur Íslendinga — ég ætla meiri hluti þjóðarinnar — sem mundi vilja gera samninga sem þessa, þar sem tryggð væru þessi atriði. En ég hygg, að sá meiri hluti sé naumast til staðar, nema við getum sannfært hann um, og það með eðlilegum og réttum rökum, að sú trygging sé til staðar. Þegar talað er um það í 2. og 3. lið þessarar yfirlýsingar, samkv. orðalagi 2. og 3. liðar á bls. 8 í grg., að aðrar þjóðir hafi fullan skilning á sérstöðu Íslands, að viðurkennt sé, að Ísland hafi engan her og ætli ekki að stofna her, og að ekki komi til mála, að erlendur her eða herstöðvar verði á Íslandi á friðartímum — fyrst allar bandalagsþjóðirnar viðurkenna, að þetta sé einstök sérstaða Íslands, þá fáum við ekki skilið, hvers vegna ekki má taka þetta fram í samningnum við Ísland sem samningsatriði. Sannleikurinn er sá, að þessi samningur er siðferðilegar skuldbindingar. Þegar því er haldið fram, að bandalagsþjóðirnar muni koma Íslandi til varnar, ef á það verði ráðizt, þá er vitanlega ekki hægt að halda fram í sömu andránni, að engar skuldbindingar séu af okkar hendi gerðar með samningi. Sannleikurinn er því sá, að ef þarna er skuldbinding fyrir bandalagsþjóðirnar um að koma Íslandi til aðstoðar, ef á það yrði ráðizt, þá er Ísland vitanlega í sama mæli skuldbundið til þess að láta í té allt það, sem með sama móti verður af því krafizt, til þess að gera varnir sjálfs þess og annarra bandalagsþjóða framkvæmanlegar. Og siðferðilegar skuldbindingar geta vitanlega verið engu síður skuldbindandi, en lagalegar skuldbindingar. Og til þess að gera þessa sérstöðu okkar skýlausa, að við ætlum aldrei að segja nokkurri þjóð stríð á hendur né taka þátt í hernaði gegn nokkurri þjóð, sem meginreglu okkar um aldir, þá álítum við ýmsir, að sú sérstaða okkar eigi að vera viðurkennd. Ef við fengjum viðurkenndan þennan fyrirvara, þá erum við ekki í neinu hernaðarbandalagi. Það er alveg skýlaust. Þvi að þá ætlum við ekki að taka þátt í hernaði gegn nokkurri þjóð, en við viðurkennum hins vegar — eða a. m. k. geri ég það —, að afstaða okkar í styrjöld hlýtur að verða, eins og við höfum áður viðurkennt, svipuð því, sem var í síðustu styrjöld. En ég vil líka hafa það tryggt, að svo verði, en að við göngum ekki með samningum feti framar, þannig að við gerum aðstöðu okkar allt aðra en í síðustu styrjöld. Ég veit, að því er haldið fram, að þetta sé siðferðisskylda og þess vegna sé yfirlýsing þessi sem skuldbinding af Íslands hálfu nægileg við undirskrift samningsins. Ég vildi óska þess, að svo væri. En það verður að afsakast, að ég get ekki fallizt á þau rök. Þau eru vonandi rétt, en ég get ekki fallizt á þau. Og ég veit ekki, hvernig það ætti að vera, að þjóðir, sem gangast undir gagnkvæmar skuldbindingar, geti síðan við undirskrift samnings lýst yfir í ræðu, að þær séu ekki bundnar við ákvæði samningsins.
Það er áreiðanlega mjög ríkt í Íslendingum að taka ekki þátt í neinum beinum hernaðaraðgerðum gegn neinni þjóð. Það er einn sterkasti þátturinn í okkar sögu og okkar menningu. Og við þurfum ekkert að blygðast okkar fyrir það að fara fram á það að halda okkur við þetta, vegna þess að við getum sýnt og sannað, að í hvert skipti, sem styrjöld hefur geisað hér á hafinu nálægt okkur, þá höfum við tekið þátt í baráttunni þannig, að við höfum í viðskiptunum við þá hernaðaraðila, sem hafa viljað varna siglingum frá og að landinu, misst tiltölulega meira af mönnum en þær þjóðir, sem þátt hafa tekið í hernaðaraðgerðunum. Og okkar fólk hefur sízt sýnt minna þor í þeirri viðureign, en menn þeirra þjóða, sem tekið hafa þátt í beinum hernaðaraðgerðum. Það er því okkur svo stórt atriði að mínu áliti, sem ég nú hef tekið fram viðkomandi þessari samningsgerð, að það skiptir um afstöðu mína meginmáli, að einmitt þetta sé tekið sérstaklega fram í samningnum, að við Íslendingar tökum ekki þátt í beinum hernaðaraðgerðum, því að þá væri ljóst, ef þetta væri þar fram tekið, að við mundum aldrei vera með í beinum hernaðaraðgerðum gegn neinni þjóð.
Annað atriði, sem ég tel, að verulegu máli skipti, er í sambandi við samninginn um flugvöllinn við Keflavík. Það kemur greinilega í ljós, að aðrar þjóðir leggja eðlilega á það megináherzlu, að þær ráði því sjálfar, hvenær þær láta í té þá hernaðaraðstoð, sem gert er ráð fyrir, að látin verði í té, eftir samningnum. Samkvæmt niðurlagi 1. liðar yfirlýsingar Bandaríkjamanna og enn fremur síðari liðum þessarar yfirlýsingar ráða Íslendingar því, að ekki séu neins konar hernaðarstöðvar í landi þeirra á friðartímum. Nú er vitað mál, að Keflavíkurflugvöllurinn er sá staður á Íslandi, þar sem fyrst og fremst yrði her, ef til styrjaldar kæmi hér á Atlantshafi eða nálægt okkur. Það er í samræmi við það, sem hér hefur verið yfir lýst, að aðstaða bandalagsþjóðanna yrði svipuð á Íslandi eins og hún var í síðustu styrjöld. En nú stendur svo á, að við höfum einmitt sérstaka samninga við eina bandalagsþjóðina um þennan flugvöll, og við ráðum ekki alls kostar yfir honum, Íslendingar sjálfir, eins og ljóst liggur fyrir og þarf ekki að ræða hér á Alþ. Þess vegna er það, að við höfum einnig að því leyti aðra aðstöðu, en nokkur önnur bandalagsþjóð, þannig að við höfum ekki tryggingu fyrir því, að við ráðum því, sem samkvæmt niðurlagi 1. liðar yfirlýsingar Bandaríkjamanna er tekið fram. Og það er þess vegna ekki á valdi Íslendinga sjálfra að ákveða, hvenær aðstoð er látin í té hér á landi í styrjöld. Og það er þess vegna heldur ekki á okkar valdi alls kostar, hvenær hér eru herstöðvar í landinu. Þetta er það, sem aðrar þjóðir þó leggja megináherzlu á að ráða og hafa alveg tryggingu fyrir að geta ráðið samkvæmt þessum samningi.
Nú hef ég ekki eða við, sem höldum þessu fram, gengið svo langt að krefjast þess, sem ýmsum kynni að hafa þótt eðlilegt, að Íslendingar segi sem svo: Fyrst losnum við, við Keflavíkursamninginn og náum yfirráðum yfir þessu svæði þar, áður en byrjað verður af okkar hálfu að semja að okkar leyti um Atlantshafsbandalag. En samkvæmt þessari stefnu hefur þó komið fram till. um viljayfirlýsingu hér á Alþ. um, að við losum okkur við Keflavíkursamninginn svo fljótt sem verða má. Og þetta finnst mér lágmark þeirra krafna, sem við hljótum að gera, til þess að við getum samþ. hér að undirskrifa þessa samningsgerð. En það kemur mjög greinilega í ljós við umr. þessa máls, — og það þykir mér mjög stór galli á þessari málsmeðferð, — að það er auðséð, að það er engu hægt að hnika til, ekki nokkrum sköpuðum hlut hægt að hnika til, ekki einum stafkrók um fyrirvara eða breytingar viðkomandi þessu, sem ég hef hér rætt um, frá því sem ákveðið hefur verið og óbreytanlegt verður að standa. Og ég er ákaflega hræddur um það, að svo kunni að fara, — þó að ég vilji vona það gagnstæða, — að það endurtaki sig viðkomandi þessum samningi, sem því miður hefur endurtekið sig nú viðkomandi utanríkissamningum okkar undanfarið, og á ég þar við Keflavíkursamninginn. Nú segja menn: Það er sjálfsögð nauðsyn að breyta samningnum um Keflavíkurflugvöllinn, hann er ekki góður. Undir þetta taka margir, sem ekki vildu taka undir þetta áður. Og um skýringarnar, sem gefnar voru á honum, eru menn sammála, að þær hafi ekki staðizt, og að loforð um hann hafi heldur ekki verið haldin. En nú á að gera að nýju samning, og þá eru gefin út ný loforð og nýjar skýringar. Og ég er ákaflega hræddur um, að sumar af þeim skýringum fái álíka staðizt eins og skýringarnar, sem gefnar voru út viðkomandi Keflavíkursamningnum á sinum tíma, þegar hann var gerður. Og ég held, að það hefði verið miklu betra fyrir þetta mál og fyrir þennan málstað allan, fyrir sambúðina við þær bandalagsþjóðir, sem við ætlum að hafa nánasta sambúð við, fyrst þessi atriði fjögur, sem hér eru talin upp, eru viðurkennd, að það væri aðaluppistaðan í samningnum frá okkar hendi, að það væri svo skýlaust fram tekið í samningnum, að ekki væri þar hægt um að villast og að ekki væri hægt að halda því fram af hálfu þeirra manna, sem eiga að vera tortryggnir á alla utanríkissamninga, að hér væri neitt um að villast viðkomandi sérstöðu okkar. Ég held, að þetta væri miklu betra fyrir sambúð þessara. þjóða, því að ég ætla, að ekkert sé verra fyrir sambúð þjóða, sem gera samninga sín á milli„ heldur en það að hafa samningana þannig, að það sé stöðugt verið að hártoga þá og stöðugt verið að ræða um, að þeir séu rofnir. Og ég er ekki í vafa um það, að þegar Bandaríkjamenn fóru héðan af landi burt, fóru þeir ekki síður vinsamlega heldur en Bretar. Og það hefur ekkert reynt meira á vináttu Bandaríkjamanna á. Íslandi heldur en Keflavíkursamningurinn og ekkert unnið þeirri vináttu meira ógagn. Og ég er ekki í efa um það, að með því að gera samninga, sem hægt er að teygja og tortryggja, þá er verið að höggva enn í þennan sama knérunn.
Um leið og ég lýk máli mínu, þá vil ég aðeins segja þetta: Öll meðferð þessa máls virðist einkennast talsvert mikið af því, að þeir tveir hópar, sem annars vegar enga samninga vilja gera, og hinir, sem kynnu að vilja gera samninga, sem gengju enn þá lengra, en þessir samningar, þeir séu atkvæðamestir í þessum leik öllum hér, en hinum, sem vilja taka þetta mál með varúð og gætni, sé ætlað lítið rúm í þessum umr. Það er auðséð og vitað, að það er lítið hlustað á hógværar rökræður um þetta mál hér á Alþ. og annars staðar. Og það var einnig þannig, þegar Keflavíkursamningurinn var gerður. En reynslan verður svo að skera úr því, hverjir, hafa raunverulega talað máli þjóðarinnar í þessu máli.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. En ég vil þó lýsa vanþóknun minni á meðferð þessa máls, því að það á ekki að ræða það með þeim sérstaka hætti eins og gert hefur verið nú hér á Alþ. Það á að ræða það rólega og með yfirvegun. Og við eigum að reyna sameiginlega að finna í málinu þá eðlilegu lausn, að samningar þessir verði gerðir af Íslendinga hálfu nú í þetta sinn þannig, að það verði öruggir samningar. Og það ætti að vera skaðlaust, fyrst aðrir samningsaðilar viðurkenna þetta sérstaka sjónarmið okkar Íslendinga. Annars er ég einn af þeim, sem telja, að nóg sé komið af þessum samningum, og vil þá heldur enga samninga heldur en þá, sem eru ekki öruggir fyrir okkar þjóð.