30.03.1949
Sameinað þing: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í D-deild Alþingistíðinda. (4476)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Áki Jakobsson:
Í umræðunum í gær kom fram ýmislegt varðandi stríðsaðild. Utanrrh. talaði þrisvar, en vék sér frá því að minnast á það, en staglaðist á því, að Íslendingar réðu öllu slíku sjálfir. Nú viðurkenna allir, að Ísland verður stríðsaðili, og það er einmitt þetta, sem leggja verður áherzlu á. Tilgangurinn með þessum samningi er að fá Ísland, því að það vita allir, að ekki geta Íslendingar komið með her. Ráðherrunum hefur verið stefnt utan, og eftir þeim skýrslum, sem komið hafa frá þeim, þá er hvergi minnzt á, að Íslendingar gerist ekki stríðsaðilar. Haldið þið, að þeir hefðu ekki talið það fram, ef þeir hefðu getað? Af hverju er þessu þá sleppt? Það er af því, að Bandaríkin vilja fá okkur sem stríðsaðila, og þá tökum við á okkur allar skyldur stríðsaðila um leið. Nú hefur það lið, sem að samsærinu stendur, tekið upp nýja tóntegund, sem kemur fram í nál. meiri hl., þar sem segir, að sérstaða Íslands sé samkv. samningnum á þá leið, að Íslendingar séu vopnlaus þjóð og muni eigi stofna her og því ekki segja nokkurri þjóð stríð á hendur og vilji engan her í landinu. Það var talað um að verja Ísland gegn Rússum og sagt, að við sósíalistar berðumst fyrir varnarleysi landsins, en svo er breytt um tóntegund, og nú er sagt, að hér eigi enginn her að vera, engin hergögn og ekki neitt. Þannig er breytt um eftir því, sem passar í kramið. Aðra stundina er sagt, að vitanlega gerumst við stríðsaðilar, enda sé hlutleysið engin vörn, en eftir svolitla stund er svo sagt, að engin hætta sé á ferðum. Þannig er öll rökfærsla þessara manna. „Enda vel ég, að hlutleysi sé okkur engin vernd,“ sagði Ólafur Thors, en nú er aftur stagazt á því, að við gerumst ekki stríðsaðilar.
Það var dálítið kostulegt að hlusta á þá menntmrh. og forsrh., er þeir stóðu upp til þess að lýsa yfir, hvað utanrrh. sagði. Ég var hér á öllum fundum og veit því, að þeir voru ekki hér í salnum, þegar hann talaði, og hann sagði aldrei, að Ísland yrði aldrei stríðsaðili. Það hefur breytzt í nótt. Þannig er samspilið milli þessara manna, sem eru að reyna að draga Ísland út í stríð. Þeim er sagt erlendis, hvað þeir skuli gera, og svo er hent í þá nokkrum dollurum. Þetta er nákvæmlega sama sagan og um Keflavíkurflugvöllinn. Það er ekki verið að semja, heldur er verið að hlýða fyrirskipunum. Öll ákvæðin miðast við það eitt að blekkja þjóðina, og allar röksemdir þessara manna eru hjóm eitt. Eins var þetta með Keflavíkursamninginn. Þar miðaðist allt við Bandaríkin, og í samræmi við það fara Bandaríkin með völlinn eins og þeim sýnist og brjóta öll íslenzk lög. Og eins yrði það með þennan samning.
Ég vil biðja þá menn, sem eru fylgjandi þessum samningi, að hugsa sig vel um, áður en þeir stíga þessi afdrifaríku spor, sem geta leitt til dauða þúsunda Íslendinga. Ég vil biðja þá að hugsa fram í tímann, því að það skulu þeir vita, að þeir verða kallaðir til ábyrgðar, ef til stríðs kemur og við lendum í þeim hildarleik.