30.03.1949
Sameinað þing: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í D-deild Alþingistíðinda. (4477)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Sigurður Guðnason:

Ég hef ekki tekið mikinn þátt í þessum umræðum og ætla mér ekki að halda langa ræðu. Ég hef setið hér á Alþingi undanfarin ár, og þetta er þriðji samningurinn, sem gerður er með stuttu millibili, og alltaf eru sömu rökin, nefnilega hættan frá kommúnistum, sem ekki séu sjálfráðir gerða sinna. Eitt er þó alltaf þungamiðjan, og það er, að við fáum allt, en þurfum ekkert að láta á móti. Þetta hefur verið sameiginlegt með öllum þessum samningum, fyrst Keflavíkursamningnum, svo Marshallsamningnum og nú síðast þessum samningi. Það væri því hugsanlegt eftir þessu, að afkoma þjóðarinnar væri góð, en það er nú eitthvað annað, því að þar er allt í eins miklu öngþveiti og hugsazt getur. En þó er sagt, að allt sé gert fyrir okkur og við látum ekkert í staðinn og þessi samningur verndi okkur. En hvað er það, sem þeir vilja fá í staðinn? Á því er enginn vafi, að þeir vilja fá stöð fyrir stærstu morðtól heimsins.

Og þetta er verið að veita þeim. Fyrir þetta hafa þessir háu herrar, sem hér sitja, fengið peningana. Það er verið að gera Ísland hluta af þessari morðvél. Morðvél Hitlers var fóðruð með gyðingum, en þessi á að vera fóðruð með kommúnistum. Og það get ég sagt ykkur, að síðastl. 30 ár hefur öll tækni og allir peningar verið notaðir í þessa morðvél. En samt eru þeir menn, sem þessu stjórna, skjálfandi af hræðslu nú í dag, því að þeir vita, að þótt alþýðan hafi ekki annað, en berar hendurnar, þá mun hún samt sigra að lokum. Með leyfi hæstv. forseta les ég ályktun þessa upp:

„Almennur útifundur, haldinn í Reykjavík miðvikudaginn 30. marz 1949 að tilhlutan fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, mótmælir harðlega þátttöku Íslands í Atlantshafsbandalaginu og vill á úrslitastundu málsins enn einu sinni undirstrika mótmæli og kröfur 70–80 félagssamtaka þjóðarinnar um, að þessu örlagaríka stórmáli verði ekki ráðið til lykta án þess, að leitað sé álits þjóðarinnar sjálfrar. Fundurinn skorar því mjög alvarlega á Alþingi að taka ekki lokaákvörðun um málið án þess að leitað sé álits þjóðarinnar, og krefst þess því, að afgreiðslu málsins sé skotið undir almenna þjóðaratkvæðagreiðslu. Fundurinn samþykkir að fela fundarboðendum að færa Alþingi og þingflokkunum þessa kröfu og óskar skýrra svara formanna þingflokkanna um afstöðu þeirra til þessarar kröfu fundarins.“

Ég vil svo skora á formenn þingflokkanna að gefa skýr svör við þessari ályktun fundarins.