30.03.1949
Sameinað þing: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í D-deild Alþingistíðinda. (4484)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra farseti. Ég spurði áðan hv. þm. G-K., hvort hann vildi gefa yfirlýsingu fyrir hönd flokksmanna sinna um, að þeir mundu vilja stuðla að því, að fram færi endurskoðun á samningnum um Keflavíkurflugvöll. Ég stend nú upp til þess að óska beins svars. Flokksformaðurinn hefur ekki, né neinn af þm. flokks hans, gefið neinar upplýsingar varðandi þetta, og verð ég að skoða þessa afstöðu sem neitandi svar, þangað til ég heyri spurningunni tvímælalaust játað. Afstaða hv. þm. G-K. er ekki í samræmi við yfirlýsingar hinna flokkanna, og ég tel því, að ekkert hafi hér fram komið, sem bendi til þess, að meiri hl. sé í þinginu fyrir þeim till., sem felast í till. okkar 3. landsk. á þskj. 506. Mun ég því segja nei við þessari till. til þál.