31.03.1949
Sameinað þing: 60. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í D-deild Alþingistíðinda. (4500)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil hér á þingi lýsa sök á hendur ríkisstjórninni og formönnum þriggja stjórnmálaflokka, sem kvöddu í gær borgara Reykjavíkur til að koma niður á Austurvöll og létu síðan vopnaða lögreglu og einn vopnaðan stjórnmálaflokk hér í bænum ráðast á þetta fólk. Ég vil hér á þingi alvarlega átelja þetta framferði, sem ég álít táknrænt af hálfu ríkisstj. og í samræmi við þá athöfn, sem verið var að gera hér innan veggja í gær. Ég vil jafnframt beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort honum sé kunnugt um, að hæstv. forsrh. hafi látið fangelsa unga stúlku fyrir að gefa honum löðrung og haldið henni í fangelsi í nótt og haldi henni enn. Ég vil spyrja að því, hvort sá lögreglustjóri, sem hefur svona aðferðir í frammi gagnvart friðsömum borgurum, eigi að sæta ábyrgð og rannsókn fyrir. Ég vil láta þetta nægja að sinni, til þess að það komi fram, hver á sökina á því, hvernig farið var að af hálfu valdhafanna hér í Reykjavík í gær.