31.03.1949
Sameinað þing: 60. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í D-deild Alþingistíðinda. (4504)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Ég heyrði því miður ekki þessar umr., sem orðið hafa hér í upphafi þessa fundar, en þó vil ég svara því, sem hv. þm. Siglf. var að spyrja um, hver gegndi störfum dómsmrh., að það er hæstv. fjmrh. Um leið vil ég taka fram, að mér finnst það storkun og hámark ósvífninnar, þegar þm. kommúnista hér á þingi, eftir það, sem skeð hefur, og þau vegsummerki, sem hér sjást, rísa upp með vandlætingu, þessir menn, sem hafa æst fólkið til að gera árás á löggjafarþingið. Mér finnst það slíkur yfirdrepsskapur, ósvífni, sem engu tali taki, þegar þessir menn, sem dögum saman hafa æst fólk til að gera árásir á Alþingi til að hindra löglegar gerðir þess, — að þessir menn skuli á Alþingi vilja krefja menn reikningsskapar fyrir það að reynt er að halda uppi réttarvörzlu í landinu. Ég verð að segja það, eftir því sem ég fylgdist með í gær, að það var síður en svo, að lögreglan að fyrra bragði gerði nokkuð það, sem ómaklegt gæti talizt. Við sjáum hér á alþingishúsinu þögulan, en skýran vitnisburð um gerðir og framferði þeirra manna, sem kommúnistarnir íslenzku bera ábyrgð á. Ef nokkuð er til, sem heitir ósvífni, þá er það þetta, að þeir menn, sem staðið hafa fyrir skipulögðum árásum á Alþingi, skuli dirfast að standa hér upp og heimta, að menn svari til sakar fyrir að halda uppi löglegri réttarvörzlu í landinu. Það er svívirða.